Viðskipti innlent

Frá Wise til VÍS

Atli Ísleifsson skrifar
Björn Þórhallsson.
Björn Þórhallsson. VÍS

Björn Þórhallsson hefur hafið störf sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS.

Í tilkynningu segir að hann komi til félagsins frá Wise, þar sem hann hafi starfað frá árinu 2013, meðal annars sem sölustjóri og yfirmaður sölu á innlendum markaði. 

Síðast gegndi hann starfi forstöðumanns sölu hjá Wise.

„Áður starfaði Björn hjá Maritech á árunum 2005 til 2013 sem sölustjóri. Hann hefur lokið BSc-prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og námi í kerfisfræði frá sama skóla,“ segir í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×