Körfubolti

Banda­ríkin og Frakk­land mætast í úr­slitum heims­meistara­mótsins

Andri Broddason skrifar
Caitlin Clark skoraði aðeins eitt stig fyrir Bandaríkin þegar liðið tryggði sig í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
Caitlin Clark skoraði aðeins eitt stig fyrir Bandaríkin þegar liðið tryggði sig í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Alexa Alejandro/Getty Images

Frakkland og Bandaríkin mætast í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í körfubolta kvenna. Bæði lið unnu sína undanúrslitaleiki í dag en úrslitaleikurinn fer fram á morgun.

Frakkland mætti Þýskalandi í fyrri undanúrslitaleiknum í dag þar sem Frakkland vann öruggan sigur, 86-64. Frakkland var einfaldlega með yfirhöndina allan leikinn og vann alla fjóra leikhlutana.

Í hálfleik var Frakkland með sjö stiga forystu en franska liðið mætti mun sterkara til leiks í seinni hálfleik og sá það þýska aldrei til sólar.

Gabby Williams var stigahæst hjá franska liðinu með 22 stig en hún gaf einnig fimm stoðsendingar og tók fimm fráköst. Janelle Salaun var næstbest hjá Frökkum en hún skoraði 14 stig og tók ellefu fráköst.

Stjörnurnar stóðu sig ekki

Í seinni undanúrslitaleiknum mættust Spánn og Bandaríkin en leikurinn þar var gríðarlega spennandi. Í hálfleik leiddu Bandaríkin aðeins með þrem stigum og því var aðeins ein karfa sem skildi liðin að í hálfleik.

Spennan hélt áfram í þriðja leikhluta því eftir hann var leikurinn jafn og aðeins einn leikhluti eftir. Í fjórða leikhlutanum virtist hins vegar bandaríska liðið hafa meiri orku en það spænska og skoraði bandaríska liðið tíu stigum meira í fjórða leikhluta heldur en það spænska.

Brenna Stewart var stigahæst í liði Bandaríkjanna en hún skoraði sextán stig. Hvorki Caitlin Clark né Angel Reese náðu að koma sér á strik í leiknum en þær eru stærstu nöfnin í WNBA-deildinni í Bandaríkjunum.

Það má því búast við mikilli spennu í úrslitaleiknum á morgun en einnig í leiknum um þriðja sætið þar sem Spánn og heimaliðið Þýskaland mætast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×