Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Boði Logason skrifar 11. september 2026 13:46 Raunveruleikastjörnunni Sunnevu Einars bregður fyrir í stiklunni ásamt Sóla Hólm í gervi töframannsins, Örvars. Kallaður Örvar töfrar. Iceguys Nýjasta afurð strákabandsins Iceguys lítur brátt dagsins ljós, en í lok næsta mánaðar verður kvikmyndin, Iceguys the Movie, frumsýnd í kvikmyndahúsum landsins.
Vísir frumsýnir í dag stiklu úr myndinni, en það er óhætt að segja að sagan um strákana í Iceguys færist nú fyrir landssteinana. Myndin fjallar um þátttöku sveitarinnar í alþjóðlegum raunveruleikaþáttum, The Battle of the Boybands, þar sem strákabönd víðsvegar úr heiminum etja kappi við hvert annað. Helstu keppinautar Iceguys eru þýskir og eru leiknir af strákabandinu Team 5ünf. Strákarnir í Team 5ünf eru ekki óþekkt nafn í Þýskalandi. Sveitin var stofnuð árið 2021 að frumkvæði Jay Khan og Marc Terenzi. Sveitin hefur sent frá sér tvær breiðskífur og komst inn á topp 20 á þýska breiðskífulistanum. Vinsælustu lög sveitarinnar hafa jafnframt verið spiluð meira en milljón sinnum á Spotify. Í tilkynningu frá Iceguys er haft eftir Jay Kahn að þeir hafi einungis starfað á þýska markaðnum undanfarin ár, en „nú erum við tilbúnir að taka yfir Ísland,“ segir hann. Með myndinni sé ætlunin að setja punkt við Iceguys-ævintýrið og verður ný tónlist einnig gefin út í tengslum við frumsýninguna. Stórtónleikar verða svo haldnir í Laugardalshöll í desember sem verða lokatónleikar sveitarinnar. „Iceguys the Movie er lokahnykkur Iceguys-ævintýrisins og núna verður allt skrúfað í botn. Við gefum út nýja tónlist á næstu dögum sem sérstaklega er samin fyrir myndina. Það verður öllu tjaldað til og þetta verður tónlistar- og kvikmyndaupplifun sem fólk verður að sjá í bíó,“ segir Hannes Þór Halldórsson, einn leikstjóra og framleiðenda myndarinnar, í tilkynningu. Myndin verður frumsýnd 30. október næstkomandi. Myndin er framleidd af Ingimari Guðbjartssyni hjá Atlavík, en leikstjórar eru Hannes Þór Halldórsson, Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Kvikmyndagerð á Íslandi Kvikmyndahús Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira