Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja VÍS 11. september 2026 09:40 Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS segir ánægjulegt að sjá aukinn metnað fyrirtækja í öryggis- og forvarnamálum. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Forvarnaverðlaun VÍS 2027. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa náð góðum árangri í forvarna- og öryggisstarfi og byggt upp sterka öryggismenningu. Umsóknarfrestur er til 30. október 2026.
Forvarnaverðlaun VÍS verða afhent á Forvarnaráðstefnu VÍS í Hörpu 11. mars 2027. Öll fyrirtæki geta sótt um, óháð því hvar þau eru tryggð. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2010 og beina sjónum sínum að heildstæðu og markvissu forvarnastarfi fyrirtækja. Horft er meðal annars til öryggis, vinnuverndar og vellíðan starfsfólks til lengri tíma. Ekki er leitað eftir einu vel heppnuðu átaki heldur fyrirtækjum þar sem forvarnir eru samofnar daglegum rekstri og menningu vinnustaðarins. „Öflug öryggismenning verður ekki til með einu átaki. Hún byggist upp með skýrri ábyrgð, stöðugri eftirfylgni og raunverulegri þátttöku starfsfólks,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS. „Forvarnir snúast ekki aðeins um að koma í veg fyrir slys heldur um að skapa vinnuumhverfi þar sem fólki líður vel og allir komast heilir heim að loknum vinnudegi.“ Guðný Helga segir ánægjulegt að sjá aukinn metnað fyrirtækja í öryggis- og forvarnamálum. „Fyrirtækin sem ná bestum árangri líta á öryggi sem sameiginlegt verkefni allra. Þar tekur starfsfólk þátt, ábendingum er fylgt eftir og reynslan nýtt til umbóta. Slík menning skilar sér alltaf í öruggara vinnuumhverfi.” Verðlaunin verða veitt í tveimur flokkum: Fyrirtæki með færri en 100 starfsmenn Fyrirtæki með 100 starfsmenn eða fleiri Umsóknarferlið gefur fyrirtækjum jafnframt tækifæri til að leggja mat á eigið forvarnastarf, draga fram styrkleika og greina hvar frekari umbóta er þörf. „Við viljum vekja athygli á fyrirtækjum sem geta verið öðrum fyrirmynd og um leið sýna fram á hverju er hægt að áorka með markvissu forvarnastarfi. Reynslan sýnir að þátttakan sjálf er verðmæt. Hún hjálpar fyrirtækjum að fá betri yfirsýn yfir stöðuna og móta næstu skref í öryggisstarfinu,“ segir Guðný Helga. Fyrirtæki sem hljóta Forvarnaverðlaun VÍS geta notað merki verðlaunanna í eigin miðlun. VÍS hvetur fyrirtæki af öllum stærðum og úr öllum atvinnugreinum til að sækja um. Meðal fyrirtækja sem hafa fengið verðlaunin síðustu ár eru Coripharma, Loftorka Reykjavík, Alcoa Fjarðarál, Sæplast, Skinney Þinganes, Rafeyri og Alvotech. Umsóknarfrestur er til 30. október Umsóknir skulu berast á netfangið forvarnir@vis.is með upplýsingum um: nafn fyrirtækis og kennitala atvinnugrein fjöldi starfsstöðva og starfsmanna upplýsingar um tengilið Forvarnaverðlaun VÍS 2027 verða afhent á Forvarnaráðstefnu VÍS í Hörpu 11. mars 2027.
Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira