Dagur Dan kom markmanninum í klandur Andri Broddason skrifar 10. september 2026 07:30 Dagur Dan og félagar í San Diego FC áttu ekki góðan leik og það sérstaklega í fyrri hálfleik Al Sermeno/ISI Photos/Getty Images Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði San Diego FC þegar liðið tók á móti San Jose Earthquakes. Gestirnir byrjuðu betur en bæði lið enduðu með aðeins tíu leikmenn inni á vellinum.
San Jose Earthquakes byrjaði leikinn sterkt og var komið yfir þegar aðeins þrjár mínútur voru liðnar. Nokkrum mínútum síðar fékk Dagur Dan boltann og ætlaði að skalla hann til baka á markmanninn en framherjinn Preston Judd var á undan í boltann. Carlos Dos Santos, markmaður San Diego, endaði á að brjóta á Judd og var dæmt víti og rautt spjald á markmanninn. Dómarinn fór þó í skjáinn og með hjálp myndbandsdómgæslu breytti hann spjaldi Dos Santos í gult. Dos Santos náði þó að bæta upp fyrir mistökin með því að verja vítið og hélt stöðunni 1-0. San Jose hélt áfram að sækja á San Diego af fullum krafti og tvöfaldaði Judd forystu San Jose á tólftu mínútu leiksins áður en Ousseni Bouda kom liðinu í 3-0. Anders Dryer minnkaði muninn fyrir San Diego rétt fyrir hálfleik eftir frábæran sprett Onni Valakari átti frábæran sprett á vinstri kantinum. Staðan var því 3-1 í hálfleik og ljóst að San Diego þurfti að hysja upp um sig buxurnar. Í hálfleik gerðu bæði lið tvöfalda skiptingu og var Dagur Dan tekinn af velli fyrir Kieran Sargeant. Á 80. mínútu kom sending inn fyrir vörn San Diego og ætlaði markmaðurinn Dos Santos að vera fyrstur í boltann. Það var ekki góð ákvörðun þar sem hann endaði á að hlaupa Ousseni Bouda niður og fékk sitt annað gula spjald að launum. Eftir að San Diego varð manni færri byrjaði liðið að sækja enn meira og eftir fyrirgjöf í teig braut Max Floriani á sér í teignum og var dæmt víti og fékk Floriani sitt annað gula spjald og þar með rautt. Cedric Bakambu skoraði örugglega úr vítinu en ekki var nægur tími eftir til að bæta við jöfnunarmarki og endaði leikurinn með 3-2 sigri San Jose Earthquakes. Dagur Dan og félagar í San Diego eru í níunda sæti vesturhluta MLS-deildarinnar sem er síðasta umspilssætið. Pakkinn er enn þéttur hjá liðunum í kring og því er hvert stig mikilvægt ef liðið vill komast í umspilssæti. Sjá má allt það helsta úr leiknum í spilaranum hér að ofan
Bandaríski fótboltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira