Sport

Sex­tán tíma flug og spilað fyrir há­degi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hundrað þúsund manns verða á leik Rams og 49ers í Melbourne. Leikurinn fer fram á besta tíma í Bandaríkjunum á fimmtudegi en fyrir hádegi á föstudegi í Ástralíu.
Hundrað þúsund manns verða á leik Rams og 49ers í Melbourne. Leikurinn fer fram á besta tíma í Bandaríkjunum á fimmtudegi en fyrir hádegi á föstudegi í Ástralíu. mynd/rams

NFL-deildin býður Kaliforníu-liðunum 49ers og Rams upp á krefjandi verkefni í fyrstu umferð NFL-deildarinnar. Það er að spila leik í Ástralíu.

Flugið þangað er sextán klukkutíma langt og svo er klukkan í Ástralíu sautján klukkutímum á undan Kaliforníu.

Til að gera verkefnið enn meira krefjandi þá mun leikurinn hefjast klukkan 10.30 að staðartíma.

Óhætt er að segja að liðin nálgist þetta verkefni á mismunandi hátt. San Francisco 49ers lagði í hann í gær og ætlar að jafna sig vel fyrir leikinn sem fer fram næstkomandi fimmtudag.

LA Rams ætlar aftur á móti ekki að leggja í hann fyrr en seint. Hversu seint hefur liðið ekki viljað gefa upp. Rams notaði sömu taktík fyrir leik í London í fyrra. Þá lentu þeir degi fyrir leik, pökkuðu Jacksonville Jaguars saman og flugu beint heim eftir leik. Ekkert lið hafði gert það áður fyrir leik í London.

Betra að fara seint til Ástralíu

Eðli málsins samkvæmt eru skiptar skoðanir á því hvernig sé best að nálgast svona verkefni. Svefnsérfræðingur segir að Rams sé að gera þetta rétt og sé sigurstranglegra fyrir vikið.

Svefnsérfræðingurinn segir að það muni líklega bíta 49ers í bossann að vera komna á ástralskan tíma þar sem leikurinn fari fram fyrir hádegi í Ástralíu. Íþróttamenn séu nefnilega upp á sitt besta líkamlega seinni part dags.

„Það sem Rams er að segja við sína leikmenn er þetta. Þið eruð bestir klukkan 18 og fram eftir kvöldi. Þið munið opna augun einn daginn og sólin verður á furðulegum stað. Það mun taka heilann tvo daga að átta sig á aðstæðum en í millitíðinni verðið þið búnir að vinna 49ers og lagðir af stað heim,“ segir Cristoph Winter svefnsérfræðingur.

Fleiri svefnsérfræðingar hafa tekið í sama streng og bæta við að það eina sem gæti skaðað Rams sé að leikmenn liðsins fái ekki nægan svefn í fluginu langa til Melbourne.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×