Erlent

Ná ekki saman um sak­hæfi Clancy

Samúel Karl Ólason skrifar
Lindsay Clancy í dómsal í Plymouth í Massachusetts í dag.
Lindsay Clancy í dómsal í Plymouth í Massachusetts í dag. AP/Greg Derr, The Patriot Ledger

Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga.

Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi.

Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna.

Sjá einnig: „Hún drap börnin“

Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða.

Málið gegn Clancy hefur verið mikið milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð.

Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um

Verði Clancy fundin sek á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún talin hafa verið ósakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins.

Sjá einnig: Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín

Kviðdómendur höfðu ekki gefið til kynna fyrir daginn í dag að þeir ættu í vandræðum með að komast að niðurstöðu.

„Ég veit að þetta voru löng réttarhöld,“ sagði William Sullivan, dómarinn. „Ég veit að vitni voru fleiri en áttatíu. Það voru rúmlega þrjú hundruð sönnungargögn. Þess vegna verð ég að biðja ykkur um að fara aftur fram.“

AP fréttaveitan er með beina útsendingu frá dómshúsinu, sem sjá má í spilaranum hér að neðan.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×