Viðskipti innlent

Daði nýr fram­kvæmda­stjóri hjá Corip­harma

Atli Ísleifsson skrifar
Daði Óskarsson.
Daði Óskarsson.

Daði Óskarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coripharma og tekur hann sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Í tilkynningu segir að Daði búi að yfir 15 ára reynslu úr lyfjaiðnaði, þar af 11 ár á vörustjórnunarsviði Medis þar sem hann gegndi meðal annars stöðu deildarstjóra og bar ábyrgð á umfangsmikilli aðfangakeðju sem náði til fjölmargra lyfjaframleiðenda. 

„Daði gekk til liðs við viðskiptaþróun Coripharma árið 2022 þar sem hann vann fyrst að verkefnum tengdum verktökuframleiðslu og síðar í auknum mæli að viðskiptaþróun eigin þróaðra lyfja félagsins. Á starfsferli sínum hefur Daði því byggt upp víðtæka reynslu af vörustjórnun, samhliða sterkum viðskiptatengslum við fjölbreyttan hóp erlendra viðskiptavina og samstarfsaðila, sem nýtist honum vel í nýju hlutverki,“ segir í tilkynningunni. 

„Það er virkilega spennandi tækifæri að fá að leiða vörustjórnunarsvið Coripharma. Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk og halda áfram að byggja upp öflugt og skilvirkt vörustjórnunarsvið sem styður við áframhaldandi vöxt félagsins,“ er haft eftir Daða í tilkynningu.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að geta ráðið í svo mikilvæga stöðu úr hópi núverandi starfsmanna. Það sýnir þann styrk, þekkingu og reynslu sem við búum yfir innan Coripharma og er okkur mikilvægur grunnur þegar við höldum áfram að byggja upp fyrirtækið. Daði býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði vörustjórnunar. Skilvirkt og áreiðanlegt flæði vöru og þjónustu frá birgjum til viðskiptavina er lykilþáttur í áframhaldandi vexti og árangri Coripharma, og ég er sannfærð um að Daði muni gegna mikilvægu hlutverki í þeirri vegferð,“ er haft eftir Jónínu Guðmundsdóttur, forstjóra Coripharma.

Coripharma er lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi á samheitalyfjum. Hjá félaginu starfa í dag um 230 manns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×