Sport

Einn sá besti snýr aftur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Donald hefur ekki spilað í rúmlega tvö og hálft ár.
Donald hefur ekki spilað í rúmlega tvö og hálft ár. Ryan Kang/Getty Images

Aaron Donald, af mörgum talinn á meðal betri varnarmanna í sögu NFL-deildarinnar, hefur tekið skóna af hillunni til að leika með Los Angeles Rams á ný.

Donald hætti í mars árið 2024 eftir tíu ár í deildinni þar sem hann náði heilum 119 leikstjórnandafellum fyrir Rams-liðið. Hann var fljótastur í sögu deildarinnar í 100 fellur.

Hann hefur æft með Rams í sumar og það hefur legið í loftinu að hann snúi aftur. Það var loks formlega tilkynnt um helgina.

Donald sameinar krafta sína með Myles Garrett, sem kom til Rams frá Cleveland Browns í sumar. Garrett er litlu síðri varnarmaður og var valinn besti varnarmaður deildarinnar 2023 og 2025. Hann setti met á síðustu leiktíð með 23 leikstjórnandafellum á einni og sömu leiktíðinni.

Rams eru taldir líklegir til afreka með þennan dúndurdúett í varnarlínunni og eru efstir á listum veðbanka um að fagna sigri í Ofurskálinni í febrúar.

NFL-deildin fer af stað eftir tvær vikur og verður að venju sýnt frá henni á rásum Sýnar Sport.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×