Heilsu Haraldar hrakar enn Atli Ísleifsson skrifar 27. ágúst 2026 07:39 Haraldur fimmti hefur verið konungur Noregs frá árinu 1991. EPA Heilsu Haraldar Noregskonungs hrakar enn og er heilsufarsástand hans sagt „mjög alvarlegt“.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá norsku konungshöllinni sem birt var í morgun. Þar segir að Hákon krónprins og Sonja drottning hafi afboðað sig á fyrirhugaða viðburði í dagskrá sinni. Norskir fjölmiðlar segja frá því að Sonja drottning og Hákon krónprins og eiginkona hans, Mette-Marit, séu öll stödd á Ríkissjúkrahúsinu í Osló. Þar eru einnig Ingiríður Alexandra prinsessa og Sverrir Magnús, börn Hákonar og Mette-Marit, og Ástríður, systir Haraldar konungs. Sömuleiðis er Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit, mættur á sjúkrahúsið, en hann hlaut á dögunum fjögurra ára fangelsisfóm fyrir nauðganir og fleiri brot. Hinn 89 ára Haraldur hefur legið inni á spítala síðan 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms. Hann hefur tekið sýklalyf vegna sjúkdómsins. Á dögunum var greint frá því í annarri tilkynningu frá konungshöllinni að konungurinn hefði glímt við sjálfnæmisblóðleysi en það er blóðsjúkdómur þar sem líkaminn byrjar að ráðast á eigin rauðu blóðkorn og eyðileggja þau of hratt. Norskir fjölmiðlar hafa greint frá því að norskir þingmenn á ferðum erlendis séu nú á leiðinni heim til Noregs, sem og biskupar landsins sem hafa verið í ferð í Róm.
Noregur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Tengdar fréttir Heilsu Haralds konungs hrakar Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi. 23. ágúst 2026 18:45 Haraldur konungur lagður inn á spítala Haraldur Noregskonungur verður lagður inn á sjúkrahús í tvær vikur. Krónprinsinn Hákon er því ríkisstjóri í fjarveru föður síns. 17. ágúst 2026 22:38 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi slasaðra í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira
Heilsu Haralds konungs hrakar Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi. 23. ágúst 2026 18:45
Haraldur konungur lagður inn á spítala Haraldur Noregskonungur verður lagður inn á sjúkrahús í tvær vikur. Krónprinsinn Hákon er því ríkisstjóri í fjarveru föður síns. 17. ágúst 2026 22:38