„Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Stefán Árni Pálsson skrifar 26. ágúst 2026 21:49 Ian Jeffs var að vonum sáttur eftir leik Vísir/guðmundur „Ég vissi ekkert svo sem. Við vorum búin að skoða andstæðinginn og mér fannst rosalega erfitt að meta þeirra deild. En ég undirbjó liðið undir allt í dag. Þetta var flottur leikur í dag. Við vorum með leikinn frá fyrstu mínútu. Þetta var bara mjög sanngjarn sigur,“ sagði Ian Jeffs aðspurður hvort að sannkallaðir yfirburðir Blika hefðu komið honum á óvart í þessum leik þar sem að andstæðingurinn var að miklu leyti ókunnur.
Ian Jeffs segir frammistaða gestaliðsins hafa komið nokkuð á óvart. Hann hafði búist við meira af liðinu þar sem að þær hafa gert vel í rúmensku úrvalsdeildinni. En hann segir að þó að rúmenska úrvalsdeildin sé alvöru deild þá eru gæði íslensku deildarinnar töluvert meiri. „Ég undirbjó liðið eins og við yrðum sterkara liðið í dag, en maður hugsar aldrei eins og maður sé að fara vinna leikinn 8-1. Maður leggur bara leikinn upp,“ sagði Ian Jeffs „Mér fannst við gera þetta virkilega vel í fyrri hálfleik. Seinni háfleikurinn þróast aðeins öðruvísi. Við skorum mörk mjög snemma í seinni háfleiknum en slökum svo aðeins á í síðustu 25 mínútunum, eins og er eðlilegt að gerist í þessari stöðu, annars gátum við alveg bætt fullt af mörkum við,“ sagði Ian Jeffs um leikinn. Ian segir að hann hafi skipað liðinu að slaka aðeins á, þegar staðan var orðin 8-0. „Svo ertu með leikmenn sem vilja bara hlaupa endalaust, eins og Edith Kristjánsdóttir. Ég sagði þeim bara að hætta að hlaupa svona mikið. Sagði þeim að senda boltann frekar en að hlaupa með hann og að taka ekki jafn mikið af hlaupum án boltans. Það er jú annar leikur á laugardaginn,“ „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp. Mér fannst leikmenn fara vel eftir leikplaninu. Þær skoruðu fullt af mörkum, hefðu geta skorað fleiri. Það var bara svekkjandi að fá þetta mark þarna á okkur. Ég er heilt yfir ánægður og sáttur með leikinn,“ sagði Ian Jeffs aðspurður út í leikinn. Ian segir mörg atriði hafa gengið mjög vel upp hjá Blikum í dag. Þeim hafi tekist að pressa vel á gestaliðið, þeim hafi einnig tekist að vinna boltann á hættulegum stöðum til þess að sækja hratt að marki þeirra. „Við vorum að spila hratt á milli manna. Við vorum ekkert að flækja þetta. Þegar varnarlínan þeirra var að ýta hátt upp komumst við á bakvið þær og náðum að refsa. Ian segist heilt yfir vera mjög sáttur með frammistöðu liðsins og að þetta hafi verið mjög góður dagur hjá Blikum. „Við vorum svo bara með fókus allan tímann og við gerðum virkilega vel,“ Ian segir þetta allt saman mjög vel heppnað en nú sé stutt á milli leikja. Liðið keppir á móti ÍBV á laugardaginn og flýgur svo út til Rúmeníu á mánudaginn til þess að ljúka einvíginu.
Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira