4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir og Gunnar Geir Gunnarsson skrifa 27. ágúst 2026 07:21 Skólabyrjun er stórt skref í lífi barna og fjölskyldna þeirra. Í haust hefja 4.677 börn grunnskólagöngu, 241 fleiri en í fyrra. Börnin eru að stíga sín fyrstu skref í því að ferðast sjálfstætt til og frá skóla; gangandi, hjólandi eða með öðrum hætti. Haustin eru því góður tími fyrir okkur fullorðna fólkið að minna okkur á ábyrgðina sem við berum í umferðinni. Börn eru óreyndir vegfarendur og skynja umferðina með öðrum hætti en fullorðnir. Með aukinni athygli og tillitssemi getum við öll lagt okkar af mörkum til að gera umhverfi þeirra öruggara. Öryggi barna á leið í skólann Börn eiga erfiðara en fullorðnir með að meta hraða, fjarlægðir og hættu. Athygli þeirra getur auðveldlega beinst að leik, vinum eða einhverju spennandi í umhverfinu. Þau eru líka lág í loftinu og geta því horfið sjónum ökumanna á milli bíla, við gróður, skjólveggi eða aðrar hindranir. Þess vegna skiptir miklu máli að ökumenn séu sérstaklega á varðbergi, einkum í hverfum þar sem börn eru á leið í skólann. Virðum hraðatakmarkanir sem eru yfirleitt 30 km/klst í skólahverfum, hægjum á okkur með því að gefa okkur meiri tíma núna þegar umferðin þyngist, stöðvum fyrir fólki við gangbrautir og höfum fulla athygli við aksturinn. Síminn á ekkert erindi við okkur undir stýri. Tökum ekki skjáhættuna því í umferðinni geta örfá sekúndubrot skipt sköpum. Undirbúum börn fyrir skólaleiðina Forvarnir byrja heima. Gott er að foreldrar og forráðamenn gangi með börnum leiðina í skólann fyrstu dagana. Þá gefst tækifæri til að finna öruggustu leiðina, benda á staði þar sem þarf að sýna sérstaka aðgát og æfa hvernig farið er yfir götu. Endurtekningin skiptir máli. Börn læra ekki aðeins af því sem við segjum þeim heldur líka því sem þau sjá okkur gera. Þegar fullorðið fólk bíður eftir grænu ljósi, notar gangbrautir, setur hjálm á höfuðið og leggur símann frá sér í umferðinni, eða setur hann á akstursstillingu, er það fyrirmyndir að öruggri hegðun. Sýnileiki verður sömuleiðis sífellt mikilvægari þegar líður lengra á haustið og dagsbirtan minnkar. Notkun á endurskinsmerkjum hefur sýnt að ökumenn sjá vegfarendur mun fyrr en ella. Því er mikilvægt að endurskin sé á fatnaði og töskum barna og að ljós og annar öryggisbúnaður á hjólum séu í lagi. Læsi og umferðaröryggi geta farið saman Það eru margar leiðir til að ræða umferðina við börn. Gott dæmi um það eru Krakkarnir í Kátugötu, námsefni sem Samgöngustofa gefur út fyrir yngstu börnin. Þar mætast tvö mikilvæg verkefni á skemmtilegan hátt: að læra að lesa og að læra á umferðina. Börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri geta um leið kynnst hugtökum, aðstæðum og reglum sem tengjast þeirra eigin ferðalagi um nærumhverfið. Slík fræðsla getur verið góð leið fyrir foreldra og börn til að ræða saman um það sem þau sjá á leiðinni í skólann. Hvar er öruggast að fara yfir götuna? Hvað þarf að athuga áður en gengið er yfir? Af hverju er mikilvægt að sjást vel? Þegar umferðarfræðslan tengist daglegu lífi barnsins verður hún bæði skiljanlegri og eftirminnilegri. Á umferd.is má jafnframt finna fræðslu og verkefni sem fjölskyldur geta nýtt til að læra saman um umferð og öryggi. Fleiri á tveimur jafnfljótum Skólabyrjun er líka kjörið tækifæri til að huga að ferðavenjum fjölskyldunnar. Verkefnið Göngum í skólann hvetur börn og fjölskyldur til að ganga, hjóla eða nýta aðra virka ferðamáta þegar aðstæður leyfa. Ávinningurinn getur verið margþættur. Börnin fá aukna hreyfingu og læra betur á nærumhverfi sitt, auk þess sem færri bílar við skólana geta dregið úr umferðarþunga og skapað öruggara umhverfi fyrir alla. En óháð því hvernig börnin ferðast í skólann er eitt mikilvægast af öllu að við fullorðna fólkið gefum þeim svigrúm til að læra á umferðina. Öryggi barnanna er sameiginlegt verkefni Sjóvá hefur um árabil lagt áherslu á forvarnir og öryggi í umferðinni og vill við skólabyrjun hvetja alla vegfarendur til að hafa sérstaklega augun opin fyrir yngstu skólabörnunum. Nú bætast á fimmta þúsund nýir og óreyndir vegfarendur við í umferðinni. Ungir grunnskólakrakkar kunna ekki alltaf reglurnar jafn vel og við. Þau hafa ekki þroska til þess að meta fjarlægðir og aðstæður rétt. Og stundum gera börn einfaldlega eitthvað óvænt og þá þurfum við ökumenn að vera vel vakandi og viðbúin að bregðast hratt við. Umferðin er samvinnuverkefni okkar allra. Hægjum á okkur! Lára Hrafnsdóttir er markaðsstjóri Sjóvár og Gunnar Geir Gunnarsson er deildarstjóri öryggis og fræðsludeildar Samgöngustofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferðaröryggi Skóla- og menntamál Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun