Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ Kjartan Kjartansson skrifar 25. ágúst 2026 10:40 Leiðtogar borgaraflokkanna í Svíþjóð þegar þeir mynduðu minnihlutastjórn með stuðningi Svíþjóðardemókrata árið 2022. Jimmie Åkesson (lengst til vinstri) er síðan orðinn formlega hluti af kosningabandalagi þeirra. Vísir/EPA Sprunga er komin í hægriblokkina í Svíþjóð sem stendur höllum fæti fyrir þingkosningar í næsta mánuði. Leiðtogi Svíþjóðardemókrata hvatti fólks til þess að kjósa ekki samstarfsflokkinn Frjálslynda en ráðherra þeirra sakar hann á móti um að „pissa í eigið tjald“.
Borgaralegu flokkarnir sem sitja nú í ríkisstjórn eiga undir högg að sækja í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar sem fara fram 13. september. Verst stendur flokkur Frjálslyndra sem gæti fengið innan við tvö prósent atkvæða, röngu megin við fjögurra prósenta þröskuldinn sem flokkar þurfa að komast yfir til þess að fá kjörna þingmenn. Yfirvofandi afhroð Frjálslyndra var tilefni þess að Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, lýsti þeirri skoðun að stuðningsfólk borgaralegu flokkanna ættu að kjósa aðra flokka en Frjálslynda ef þeir næðu ekki 3,5 prósentum í könnunum fyrir kjördag. Sérstaklega ættu stuðningsmenn Svíþjóðardemókrata ekki að kjósa Frjálslynda taktískt. Þeir væru sá flokkur innan hægriblokkarinn sem stæði Svíþjóðardemókrötum fjærst og að hann hefði verið þeim þrándur í götu á kjörtímabilinu. „Ég lít á flokkana sem pólitíska andstæðinga hugmyndafræðilega. Svíþjóðardemókratar og Frjálslyndir eru á öndverðum meiði um til dæmis Evrópusambandið, evruna sem gjaldmiðil Svíþjóðar, loftslagsstefnu og þróunaraðstoð Svíþjóðar,“ skrifaði Åkesson á samfélagsmiðli. Ætti að einbeita sér að andstæðingunum Ummæli Åkesson féllu í grýttan jarðveg hjá Simonu Mohamsson, leiðtoga Frjálslyndra. Hún sagðist ekki ætla að ganga svo langt að kalla Åkesson „kvisling“ líkt og flokksbróðir hans kallaði leiðtoga Jafnaðarmanna fyrr í þessum mánuði. Velti hún fyrir sér hvers vegna hann beindi ekki spjótum sínum að vinstri vængnum og þeim „glundroða“ sem skapaðist ef henn bæri sigur úr býtum í kosningunum. „Við ættum að einbeita okkur að andstæðingum okkar og ekki pissa í okkar eigið tjald,“ sagði Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra úr röðum Frjálslyndra. Rasistaflokkur með nýnasistarætur Litlir kærleikar voru lengi á milli Frjálslyndra og Svíþjóðardemókrata. Mohamsson, sem tók við forystu í flokki sínum í fyrra, lýsti þeim síðarnefndu sem rasistaflokki með rætur í nýnasisma og að hún gæti aldrei hugsað sér að vinna með þeim þegar hún var yngri. Mohamsson er af palestínskum og líbönskum ættum. Það kom ekki í veg fyrir að Mohamsson tæki sæti í minnihlutastjórn borgaraflokkanna sem Svíþjóðardemókratar vörðu falli á þessu kjörtímabili. Féllust þau Mohamsson og Åkesson jafnvel í faðma, að því er kemur fram í umfjöllun danska ríkisútvarpsins. Flokkarnir höfðu þegar ákveðið að Svíþjóðardemókratar yrðu teknir inn í ríkisstjórn ef þeir færu með sigur af hólmi í haust. Auk Frjálslyndra og Svíþjóðardemókrata mynda Kristilegir demókratar og Moderaterna, flokkur Ulfs Kristersson forsætisráðherra, hægriblokkina.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira