Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Andri Broddason skrifar 24. ágúst 2026 20:00 Lando Norris er hógvær um hvort hann geti blandað sér í heimsmeistaraslaginn. Anni Graf - Formula 1/ Getty Images Eftir sigurinn í hollenska kappakstrinum í gær hefur Lando Norris unnið tvo kappakstra í röð í Formúlu 1. Ef McLaren-bíllinn heldur áfram að bæta sig gæti hann orðið mesti keppinautur Kimi Antonelli sem situr í efsta sæti heimsmeistaramótsins.
Miklar vangaveltur eru í gangi eftir hollenska kappaksturinn sem formlega byrjaði seinni helming tímabilsins í Formúlu 1. Nú hefur Lando Norris unnið tvær keppnir í röð sem gerir hann að einum sigurstranglegasta ökumanninum í næstu keppnum. Lando Norris er ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 og er sem stendur í fjórða sæti heimsmeistarmótsins með 159 stig. Tveir ökumenn eru jafnir í öðru sætinu en það eru fyrrverandi liðsfélagarnir Lewis Hamilton og George Russell. Russell keyrir fyrir Mercedes á meðan Hamilton er hjá Ferrari en þeir hafa báðir 24 stiga forskot á sjóðheitan Norris. Í efsta sætinu situr Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, 59 stigum fyrir ofan ökumennina í öðru sætinu. Þrátt fyrir að Norris sé með 83 stiga bil í efsta sætið er nóg af stigum í pottinum til að saxa á ökumennina fyrir ofan. Á síðasta tímabili náði Max Verstappen að vinna upp stærra bil á Oscar Piastri í öðru sætinu þegar jafn mikið var eftir af tímabilinu. Liðið þarf að halda áfram að bæta bílinn Þó að það sé hægt að minnka bilið hægt og rólega þá á ekki að gera ráð fyrir því að Norris nái því. Hann sjálfur er raunsær og eftir að hafa orðið heimsmeistari á síðasta tímabili veit hann hvað hann þarf til að enda aftur í fyrsta sætinu. „Ég veit að ég er búinn að vinna tvær keppnir í röð en þessa mínútuna get ég sagt að ég er ekki með bílinn til þess að berjast um heimsmeistaratitilinn,“ sagði Norris í viðtali eftir hollenska kappaksturinn. „Ég er að sjá til þess að við sem lið slökum ekki á eða tökum því rólega á nokkurn hátt. Við höfum stærra verk að vinna en nokkru sinni fyrr, jafnvel meira en síðustu tvö ár sem við höfum orðið heimsmeistarar.“ McLaren-liðið hefur orðið heimsmeistari bílasmiða síðustu tvö ár en Mercedes er með afgerandi forystu á þessu tímabili. Mercedes er með 425 stig á meðan Ferrari er í öðru sætinu með 338. Í þriðja sætinu situr McLaren með 263 stig og því mikið sem liðið þarf að vinna upp til þess að ná þriðja heimsmeistaratitlinum í röð.
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Sjá meira