Lífið

Siggi Gunnars hættur sem tón­listar­stjóri Rásar 2

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Siggi Gunnars er hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 og kominn alfarið yfir í sjónvarpið.
Siggi Gunnars er hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 og kominn alfarið yfir í sjónvarpið. RÚV

Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, er hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 eftir að hafa fært sig yfir í dagskrárgerð í sjónvarpi fyrr á árinu. Dagskrárstjóri Rásar 2 og tónlistarráð Rásar 2, sem er skipað starfsfólki stöðvarinnar, hefur sinnt verkefnum tónlistarstjóra síðan þá og mun gera það áfram.

Siggi Gunnars var ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 árið 2022 eftir að hafa starfað áður sem dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100. Siggi er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er með meistaragráðu í faginu með áherslu á útvarp frá háskólanum í Sunderland á Englandi.

Sjá einnig: Siggi Gunnars nýr tónlistarstjóri Rásar 2

Siggi hefur stýrt hinum ýmsu þáttum á Rás 2 síðustu fjögur ár, meðal annars Popplandi, Upp, upp mín sál og Uppskrift að jólum. Hann færði sig yfir í sjónvarpið í apríl á þessu ári þegar hann byrjaði með menningarþættina Miðstöðina.

Siggi staðfesti í samtali við blaðamann að hann hefði hætt sem tónlistarstjóri Rásar 2 fyrr á árinu og væri kominn alfarið í dagskrárgerð. Hann hefði langað til að sinna meiri dagskrárgerð og minni stjórnun.

Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2, segist við blaðamann hafa séð um verkefni tónlistarstjóra síðan Siggi færði sig yfir í sjónvarpið í samvinnu við tónlistarráð stöðvarinnar.

Matthías Már gengur í hin ýmsu verk á Rás 2.Vísir/Anton Brink

„Ég tók að mér tónlistarstjórnina aftur eftir að Siggi fór, ég var tónlistarstjóri Rásar 2 áður en ég varð dagskrárstjóri, og í rauninni mun tónlistarráð Rásar 2 stýra þessu. Sama tónlistarráð og hefur verið,“ segir Mattías en ráðið er skipað starfsfólki stöðvarinnar.

„Ég svara fyrir tónlistarráðið og sinni þessum helstu tónlistarstjóraverkefnum sem Siggi var með,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.