Tónlist

Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ivan Mendez er genginn til liðs við Dimmu.
Ivan Mendez er genginn til liðs við Dimmu.

Þungarokkssveitin Dimma hefur fundið sér nýjan söngvara, hinn kólombísk-íslenska Ivan Mendez, eftir að Stefán Jakobsson hætti í sveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal. Dimma vinnur þessi dægrin að sjöundu breiðskífu sinni og gaf út fyrsta lagið af henni í dag.

Hljómsveitin greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum.

„DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali!

Lagið er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í 5 ár og gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á frá sveitinni á sjöundu breiðskífu okkar, sem nú er í vinnslu og væntanleg á næsta ári,“ segir í tilkynningu.

Nýjasti meðlimur sveitarinnar er söngvarinn Ivan Mendez sem er ættaður frá Kólombíu og hefur gefið út tónlist undir eigin nafni síðustu ár. Fyrir eru í sveitinni Skúli Gíslason trommuleikari, Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari.

Hægt er að hlusta á nýja lagið, „Skarkala!“, hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.