Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Aron Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 07:30 Lewis Hamilton var ekki sáttur með sitt lið í gær Vísir/Getty Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, var pirraður út í lið sitt þegar að hollenski kappaksturinn fór fram í gær.
Hamilton endaði í fjórða sæti keppninnar, og var innan við sekúndu frá þriðja sætinu en tókst ekki að komast fram úr fyrrverandi liðsfélaga sínum George Russell. Pirringur Hamilton sneri að því að hann sá möguleika á sæti á verðlaunapalli en þurfti að verja drjúgum tíma fyrir aftan Charles Leclerc, liðsfélaga sinn hjá Ferrari eftir að hafa farið inn á þjónustusvæði og fengið undir bíl sinn ferskari dekkjagang. „Ég er hraðari en Leclerc, mín dekk eru betri en hans,“ mátti heyra Hamilton segja við lið sitt á meðan á keppni stóð yfir og var þar með að reyna fá Ferrari til þess að fá Leclerc til að hleypa sér fram úr. Ferrari tók það hins vegar ekki í mál. „Við erum bara að tapa tíma,“ mátti heyra pirraðan Hamilton segja. „Þetta er frábær leið til þess að tapa tíma.“ Í sömu keppni mátti sjá George Russell hleypa liðsfélaga sínum Kimi Antonelli fram úr en Ítalinn þá á nýrri dekkjagang. Hamilton var spurður út í tilfinningar sínar eftir keppni. „Ég vil vinna. Ég vil vinna og er hér til þess að vinna,“ svaraði Hamilton. „Það er erfitt að horfa á þetta og sjá Mercedes á sama tíma hrókera sínum ökuþórum. Þeir fá skipun og hún er framkvæmd.“ Hamilton segist munu ræða þessi mál við lið sitt milli keppnishelga. Lando Norris, ökuþór McLaren vann keppni gærdagsins og var á undan Mercedes ökuþórunum í öðru og þriðja sæti. Formúla 1 heldur næst á heimavöll Ferrari, Monza á Ítalíu, þar sem keppt verður eftir hálfan mánuð.
Akstursíþróttir Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Sjá meira