Fótbolti

Brynjólfur hélt á­fram að skora en allt hrundi á hinum endanum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Brynjólfur er sjóðheitur þessa dagana en það dugði skammt gegn PSV. 
Brynjólfur er sjóðheitur þessa dagana en það dugði skammt gegn PSV.  Rico Brouwer/Soccrates/Getty Images

Brynjólfur Darri Willumsson skoraði þriðja leikinn í röð þegar hann kom Groningen yfir á útivelli gegn PSV en 5-1 tap varð niðurstaðan.

Groningen hafði farið vel af stað á tímabilinu og unnið fyrstu tvo deildarleikina. Leikurinn við ríkjandi meistaralið PSV fór líka vel af stað því Brynjólfur Darri kom gestunum frá Groningen yfir strax á 9. mínútu.

Heimamenn voru hins vegar snöggir að svara fyrir sig og jöfnuðu tveimur mínútum síðar þegar Thijmen Blokzijl, varnarmaður Groningen, setti boltann óvart í eigið net.

Sjálfsmarkið varð upphafið að algjöru hruni hjá Groningen og liðið tapaði leiknum á endanum 5-1 eftir tvennu frá Ivan Perisic og mörk frá Ricardo Pepi og Serginio Dest.

Fullkomin byrjun Groningen tók því enda en PSV er enn með fullt hús stiga, að þremur leikjum loknum.

Brynjólfur Darri hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu og skorað í fyrstu þremur leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×