Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Jón Þór Stefánsson skrifar 22. ágúst 2026 11:24 Pantoja gat hermt eftir dýrunum og taldi sig geta átt í samskiptum við þau. Marcos Rodríguez Pantoja, sem var þekktur sem úlfadrengurinn í Sierra Morena eða kallaður Mowgli Sierra Morena-fjallana, er látinn áttatíu ára að aldri.
Pantoja varði stærstum hluta uppvaxtarára sinna utan samfélags manna, í afskekktum fjöllum Spánar, og þar af tólf árum í samfloti við úlfa. Hann fæddist í þorpinu Añora í suðurhluta Spánar árið 1946. Um þær mundir var Spánn að jafna sig eftir borgarastyrjöld og Evrópa í sárum eftir heimsstyrjöld. Móðir hans lést þegar hann var einungis þriggja ára og systkini hans fluttu til ættingja, en hann varð eftir með föður sínum sem tók við nýja konu, sem er sögð hafa misnotað hann. Þau fluttu til Sierra Morena-fjallanna til þess að vinna við kolagröft eða vinnslu kola. Þegar Pantoja varð sjö ára gamall var hann seldur af föður sínum til geitahirðis á gamalsaldri. Hirðirinn kenndi honum margt, líkt og að kveikja eld og búa til skó, að sögn Pantoja, en hann lést eða hvarf sporlaust ekki löngu eftir að drengurinn ungi var sendur til hans. Þá hóf Pantoja að búa í kringum dýrin. Í viðtali sem hann veitti El País fyrir átta árum var haft eftir Pantoja að lífið með úlfunum hafi verið eina æviskeið hans þar sem hann lifði hamingjusömu lífi, ylfingarnir hafi tekið hann í sátt sem bróður og úlfynja eitt sinn gefið honum að borða. Pantoja hefur bæði verið líkt við Mowgli og Tarzan.Getty Til eru einhver dæmi í mannkynssögunni um börn sem alast upp með dýrum en ekki mönnum, og Pantoja var eitt þeirra. Hann mun hafa lært að herma eftir hljóðum dýranna, og taldi sig geta átt í samskiptum við þau. „Mér gekk mjög vel. Ég vissi ekki hvað peningur var, en mig vantaði aldrei neitt í matinn,“ sagði hann eitt sinn við Spænska ríkisútvarpið. „Ef ég vildi fisk, þá veiddi ég í ánni. Ef ég vildi kanínu, þá handsamaði ég eina slíka. Ef ég vildi dádýr, þá kallaði ég til foreldra minna, úlfana. Ég ýlfdi, og faldi mig í ánni og úlfarnir komu með hræið til mín.“ Erfið ár í mannheimum Pantoja forðaðist menn, en árið 1965, þegar hann var nítján ára gamall, hafði lögreglan hendur í hári hans, og honum gert að aðlagast samfélagi manna. Í fyrstu bjó hann hjá presti í Jaén, svo hjá nunnum í Madríd, síðan sinnti hann herþjónustu, og starfaði síðan á hótelum og veitingastöðum. Svo virðist sem lengst af hafi enginn trúað frásögn hans um lífið með úlfunum, fyrr en mannfræðingurinn Gabriel Janer Manila rannsakaði mál hans. Þeir fyrstu sem ræddu við og umgengust Pantoja eftir að hann kom aftur í mannheima bentu á að hann ætti erfitt með mannleg samskipti, ætti við tungumálaörðugleika að stríða, og hagaði sér skringilega. Á móti kom, þá bjó hann yfir gríðarlegri þekkingu á náttúrunni. Það mun hafa orðið til þess að Manila trúði honum. Árið 2001 flutti Pantoja til þorpsins Rante, þar sem hann bjó til dauðadags. Síðustu árin var hann duglegur að segja sögu sína, í von um að auka vitundarvakningu um hvernig sé best að vernda náttúruna og lifa í sátt og samlyndi við hana. Í áðurnefndu viðtali við El País sagðist Pantoja hafa heimsótt fyrri heimkynni sín í náttúrunni tvívegis. En dalurinn þar sem hann bjó sé nú uppfullur af bóndabæum afgirtum með rafmagnsgirðingum. Heimurinn sem hann ólst upp í er ekki lengur til.
Andlát Dýr Spánn Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira