Formúla 1

Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina

Andri Broddason skrifar
Isack Hadjar verður frá um helgina en reynir að ná bata til að keppa á Ítalíu.
Isack Hadjar verður frá um helgina en reynir að ná bata til að keppa á Ítalíu. Jakub Porzycki/Getty Images

Isack Hadjar braut á sér hendina á boxæfingu og verður ekki með í hollenska kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina. Liam Lawson mun keyra Red Bull-bílinn í hans stað.

Formúla 1 snýr til baka eftir sumarfrí um helgina og mun liðaskipanin hjá Red Bull-liðunum tveim verða öðruvísi. Isack Hadjar var á boxæfingu á meðan sumarfríið stóð yfir en fékk sprungu í bein sem er í úlnliðnum hans og mun hann sleppa keppninni um helgina til þess að ná bata. Búist er við að hann muni taka þátt í ítalska kappasktrinum sem á að fara fram 6. september.

Í staðinn fyrir Isack Hadjar mun RB-ökumaðurinn Liam Lawson keyra Red Bull-bílinn en Hadjar verður í Hollandi að gefa Lawson ráð um helgina. Liam Lawson hefur áður keyrt fyrir Red Bull en eftir aðeins tvær keppnir var honum vísað frá liðinu og snéri aftur til RB. Þegar það gerðist tók Yuki Tsunoda við hjá Red Bull en náði ekki heldur að finna sig hjá liðinu.

Yuki Tsunoda er ekki með sæti í Formúlu 1 í ár en er varaökumaður Red Bull-liðanna tveggja. Hann var í fríi á Grikklandi þegar hann fékk símtal í vikunni um að hann þyrfti að keyra fyrir RB-liðið um helgina. Hann tekur því við sæti Lawson sem verður þessa helgina hjá Red Bull.

Það sem af er tímabili hefur Liam Lawson keyrt vel og hefur verið einn af bestu ökumönnum miðjunnar. Hann er í níunda sæti með 43 stig og er aðeins einu sæti fyrir neðan Isack Hadjar hjá Red Bull. Hadjar er þó með 25 stiga forskot en Lawson hefur heillað á þessu tímabili þar sem hann er 20 stigum yfir liðsfélaga sínum hjá RB, Arvid Lindblad.

Hollenski kappaksturinn verður sýndur á beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay




Fleiri fréttir

Sjá meira


×