Körfubolti

Ís­lenskan öll að koma til hjá ný­liða lands­liðsins

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Emma Grace mun spila sína fyrstu A-landsleiki gegn Portúgal um helgina.
Emma Grace mun spila sína fyrstu A-landsleiki gegn Portúgal um helgina. vísir / BJARNI

Emma Grace Theodorsson er í A-landsliðshópi Íslands í körfubolta í fyrsta sinn á ferlinum. Hún hefur verið búsett í Bandaríkjunum alla sína ævi en er nýlega flutt til Íslands og stefnir á að ná tökum á málinu.

Emma Grace er hálfíslensk en faðir hennar Ólafur Theódórsson lék á sínum tíma með ÍR og Val og yngri landsliðum Íslands. Ólafur fluttist út til Bandaríkjanna átján ára gamall og sneri ekki aftur en dóttir hans ákvað að spila einnig fyrir hönd Íslands í körfubolta.

Emma er nýútskrifuð úr bandaríska háskólaboltanum og samdi í sumar við Njarðvík um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónus deildinni. Tveir aðrir Njarðvíkingar eru einmitt í íslenska landsliðshópnum sem spilar æfingaleiki við Portúgal á morgun og hinn, þær Danielle Rodriguez og Ásta Júlía Grímsdóttir.

Emma hefur áður spilað fyrir yngri landslið Íslands og þekkir nokkrar úr A-landsliðinu þaðan. Hún var líka herbergisfélagi Þórönnu Kika Hodge-Carr þegar þeir spiluðu fyrir háskóla í Chicago.

Með góðri hjálp liðsfélaga og einnig TikTok segir Emma að íslenskunámið gangi vel.

„Já, þetta er allt að koma til. Hægt og rólega. Liðsfélagar mínir hafa hjálpað heilmikið og ég tala líka mikið við ömmu mína og afa á íslensku. Þetta er verk í vinnslu,“ sagði Emma.

Nánar verður rætt við Emmu og hinn nýliðann í landsliðinu, hina sextán ára gömlu Berglindi Kötlu Hlynsdóttur, í Sportpakka Sýnar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×