Lífið

Nico­le birtir myndir úr Ís­lands­heimsókninni: „Við elskum ykkur Ís­land!!“

Atli Ísleifsson skrifar
Nicole Kidman naut lífsins hér á landi í síðustu viku.
Nicole Kidman naut lífsins hér á landi í síðustu viku.

Ástralska leikkonan Nicole Kidman birti í nótt myndir úr heimsókn sinni til Íslands. Hún sótti landið heim í síðustu viku og var í hópi þeirra sem upplifðu almyrkvann hér á landi síðastliðinn miðvikudag, 12. ágúst.

Í færslunni fylgir texti þar sem hún segir Ísland vera fallegt og ferðin einstök. „Við elskum ykkur, Ísland!!“

Fyrr í vikunni birti Kidman mynd af sér í miðbæ Akureyrar og þá var sagt frá því að hún hefði verið stödd á Snæfellsnesi þegar almyrkvinn stóð yfir.

Leikkonan á langan og glæstan feril og hefur meðal annars leikið í myndum á borð við Moulin Rouge, Eyes Wide Shut, The Hours, Babygirl og The Others, auk þáttaraða á borð við Big Little Lies.


Tengdar fréttir

„Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman

Óperusöngkonan Alexandra Chernyshova var fengin til þess að syngja fyrir hóp ferðamanna ofan í Vatnshelli á Snæfellsnesi. Henni til mikillar undrunar var Hollywood-stjarnan Nicole Kidman meðal hópsins. 

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.