Formúla 1

Fram­lengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu

Andri Broddason skrifar
Alexander Albon mun keyra fyrir Williams á næsta tímabili.
Alexander Albon mun keyra fyrir Williams á næsta tímabili. Bryn Lennon/Getty Images

Alex Albon hefur framlengt samning sinn við Williams í Formúlu 1. Nýr samningur mun gilda fram yfir næsta tímabil.

Árið 2022 gekk Alex Albon til liðs við Williams eftir að hafa verið eitt ár sem varaökumaður fyrir bæði Red Bull og Alpha Tauri. Honum virðist líða vel hjá Williams en liðið náði óvæntu fimmta sæti í heimsmeistaramóti bílasmiða á síðasta tímabili.

Núverandi tímabil hefur ekki gengið alveg jafn vel og á síðasta ári og situr liðið nú í níunda sæti með aðeins ellefu stig eftir ellefu keppnir. Albon lítur aðeins á árið í ár sem frávik.

„Eitt erfitt ár gefur ekki alla myndina og það gefur mér meiri metnað að halda uppbyggingu liðsins áfram og reyna að gera það besta sem ég get fyrir liðið. Sagan okkar er ekki búin, ég mun setja alla mína einbeitingu í að gera allt sem ég get til að færa liðið ofar,“ sagði Albon eftir að hafa framlengt samninginn sinn.

Síðan James Vowles, liðsstjóri Williams, gekk til liðs við bílaframleiðandann hefur markmið hans verið að ná góðu gengi eftir reglubreytingarnar sem komu í byrjun tímabils. Það virðist ekki hafa gengið hjá honum og varð liðið í verri stöðu en árið áður. Með því að framlengja samning við Alex Albon er möguleiki á að ná aftur góðu gengi fyrir bílaframleiðandann.

Alex Albon byrjaði ferilinn sinn hjá Toro Rosso sem var systurlið Red Bull. Eftir að hafa staðið sig vel þar fékk hann strax að fara í aðallið Red Bull á sínu fyrsta tímabili í Formúlu 1. Það reyndist ekki vera jafn mikið lukkuskref og hann vonaðist til og var hann lengi að koma sér í takt við nýja bílinn.

Eftir tímabilið árið 2020 var hann ekki lengur ökumaður Red Bull heldur aðeins varaökumaður fyrir bæði aðallið Red Bull og systurliðið. Eftir að hann gekk til liðs við Williams hefur hann keyrt frábærlega og er einn af eftirsóttustu ökumönnum í Formúlu 1. Lítið er um möguleika á að skipta um lið og hefur hann ákveðið að halda áfram hjá Williams og skína þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×