„Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. ágúst 2026 20:00 Jónas G. Allansson er skrifstofustjóri varnarmálaskrifstou utanríkisráðuneytisins en myndin til vinstri er frá Norðurvíkingi árið 2022. Vísir/Anton Brink/Utanríkisráðuneytið Næstu helgi fer af stað varnaræfingin Norðurvíkingur sem er samstarfsverkefni Íslands, Bandaríkjanna og fjölda bandalagsríkja. Í æfingunni taka að þessu sinni þátt í kringum tólf hundruð manns frá tólf löndum.
Þessi tvíhliða varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands fer fram hér á Íslandi og hafsvæðinu í kringum landið dagana 22. ágúst til 3. september næstkomandi. Meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins. „Það er sem sagt verið að æfa beinar varnir Íslands og varnir sjóleiðanna hér í kringum landið, þannig að mjög mikill hluti af æfingunni fer fram úti á sjó,“ segir Jónas G. Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. „Það eru flugvélar og skip sem taka þar þátt, meðal annars viðbrögð við umferð kafbáta og varnir sjóleiða. Svo hér í landi þá verður þunginn í stuðningi við þetta viðbragð sem er að eiga sér stað úti á sjó,“ bætir Jónas við. Viðvera á Akureyri og hugsanlega fleiri stöðum Í kringum tólf hundruð manns taka þátt í æfingunni að þessu sinni frá tólf löndum, þar af eru um tvö hundruð Íslendingar. „Þunginn í þessu er fyrst og fremst er viðbúnaður á hafi og það eru þá skip og kafbátar og kafbátaleitarflug. En það verður ýmislegt annað æft, bæði í smærra umfangi og stærra. Við munum til dæmis sjá flugvélar sem munu æfa lendingar á flugbrautum á Íslandi og þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi. Ég tel svo til að það verði einhver viðvera á Akureyri og hugsanlega á fleiri stöðum,“ bætir Jónas við. Landinn verður því var við einhvern hluta æfinganna en ekki alla. „Þannig að þetta verður sýnilegt en stærsti þunginn í æfingunni er úti á hafi og er þar af leiðandi kannski ekki eins sýnilegur.“
Utanríkismál NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira