Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Eiður Þór Árnason skrifar 14. ágúst 2026 16:41 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, sendiherra og þingmaður, segir að endir Icesave „martraðarinnar“ sé ekki Ólafi Ragnari Grímssyni að þakka. Vísir/vilhelm „Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“
Þetta skrifar Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, um opinn fund fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Viðburðurinn komst í fréttir þegar Háskóli Íslands hætti við að hýsa hann í hátíðarsal skólans en tvennum sögum fór af því hvort fundurinn væri á vegum samtakanna Áfram Ísland sem beita sér gegn því að Ísland fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Ég þóttist svo sem vita af fyrri kynnum, hvað Dr Baudanbacker hefði fram að færa í aðalatriðum. En ég vildi sýna manninum verðskuldaða virðingu sem fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins,“ skrifar Jón Baldvin í skoðanagrein á Vísi. Það hafi jú verið niðurstaða hans og meðdómara við EFTA-dómstólinn árið 2013 að íslenska ríkinu bæri ekki lagaleg skylda til að greiða Bretum og Hollendingum vegna innistæðna á Icesave-sparireikningum Landsbankans. Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið meðal talsmanna Áfram Íslands.Vísir/arnar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, stýrði fundinum með Baudenbacher á mánudag og Jón Baldvin kemst ekki hjá því að beina spjótum að sínum gamla pólitíska andstæðingi. „Þótt synjun forsetans á undirskrift laga í tvígang hafi engu breytt um endurgreiðslu til erlendra sparifjáreigenda, dugði hún til að lappa uppá orðstír forsetans, sem hafði látið nokkuð á sjá í aðdraganda Hrunsins. Þá beitti hann embætti sínu glaðbeittur sem veislustjóri útrásarvíkinganna, skreytti þá fálkaorðum og flutti ræður þeim til lofs og dýrðar sem urðu frægar að endemum fyrir rasískan hroka sem í þeim birtist.“ EES lifi ekki lengi Í grein sinni rýnir Jón Baldvin í málflutning feðginanna Carls og Lauru Baudenbacher sem hafa gefið út bókina Iceland Before the EU Referendum sem gæti útleggst sem Ísland andspænis þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB. Þar segir hann því velt upp hvort það væri ekki raunsærra að stefna að tvískiptu samrunaferli innan Evrópusambandsins í stað þess að steypa öllum ríkjum Evrópu í sama stjórnarfarsmótið. Annars vegar væri um að ræða pólitískt sambandsríki í anda Bandaríkjanna og hins vegar fjölþætt samstarf á sviði efnahagsmála. Jón Baldvin tekur undir með höfundum bókarinnar að EES-samstarfið þjóni þar með strategískum hagsmunum Evrópu í ófyrirsjáanlegum heimi. „En það verður ekki eilíft,“ bætir hann við. „Ef Noregur tekur stefnu á fulla aðild að ESB í náinni framtíð, er úti um EES. Það er hafið yfir allan vafa að Íslendingar einir geta ekki staðið undir EFTA stoðinni. Þess vegna er kominn tími til að kanna rækilega, hvort full aðild samræmist brýnustu þjóðarhagsmunum okkar í framtíðinni. Um það er spurningin 29. ágúst n.k. Og svarið við þeirri spurningu er JÁ,“ skrifar Jón Baldvin, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, að lokum. Hann hefur áður sagt að EES-samningurinn hafi að öllu leyti orðið til í tíð sinni sem utanríkisráðherra. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Icesave EFTA EES-samningurinn Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira