Keppendur Eurovision verði að vera orðnir átján ára Áróra L Davíðsdóttir skrifar 12. ágúst 2026 16:17 DARA vann Eurovision í fyrra með laginu Bangaranga fyrir hönd Búlgaríu. Getty/Christian Bruna Nýjar reglur munu vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem haldin verður í Búlgaríu. Þær kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.
Stjórn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur sett nýjar reglur um framkvæmd Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, en þær taka gildi fyrir keppnina 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Nýju reglurnar kveða meðal annars á um að keppendur þurfi að vera eldri en 18 ára þegar fyrstu æfingar fyrir keppnina hefjast, en fyrir var aldurstakmarkið 16 ár. Ástæða breytingarinnar sé til þess fallin að vernda unga flytjendur og draga úr þeim þrýstingi sem fylgi því að taka þátt í keppninni. Ekki megi halda keppnina þar sem vopnuð átök fari fram Einnig hafa verið gerðar breytingar á reglum varðandi gestgjafaþjóðina. Sú þjóð sem vinnur Eurovision gæti misst réttinn á að halda keppnina í landinu ef vopnuð átök standa yfir í landinu sem og vegna annarra þátta sem gætu ógnað öryggi. Stjórn EBU geti í þeim aðstæðum framkvæmt öryggismat og falið annarri þjóð að halda keppnina. Ef sigurþjóðin er talin ófær til þess að halda keppnina verður annar gestgjafi fundinn til þess að halda keppnina. Í reglum Eurovision segir: „Þar sem vopnuð átök, viðkvæm landfræðileg staða eða aðrar ástæður hafa veruleg áhrif á öryggi, vernd eða stöðugleika á landinu eða nærliggjandi svæði þátttökusjónvarpsstöðvar, skal sú þátttökusjónvarpsstöð ekki vera gjaldgeng til að halda næstu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ef framlag hennar sigrar.“ „Í þessu samhengi merkir „nærliggjandi svæði“ land viðkomandi sjónvarpsstöðvar og/eða nágrannasvæði þar sem staðan hefur bein og mikil áhrif á öryggi þess (til dæmis hernaðaraðgerðir, árásir eða takmörkun á lofthelgi sem hafa áhrif á örugga skipulagningu Eurovision).“ Sigurþjóð keppninnar heldur öllu að jafna keppnina að ári liðnu, þó eru til undantekningar frá þessari hefð. Til að mynda vann Úkraína keppnina árið 2022 en vegna átaka þar í landi var Úkraína ekki talin hæf til þess að halda keppnina. Því var keppnin árið 2023 haldin í Bretlandi, en framlag þess lenti í öðru sæti árið 2022. Aðalsöngvari verði að flytja lagið í beinni Auk þess verði teknar upp nýjar reglur um hljóð hvað varðar notkun fyrirfram upptekins efnis í keppninni. Nýjar reglur kveða á um að aðalsöngvari verði að flytja lagið í beinni útsendingu. Bakraddir og annað undirspil megi vera tekið upp fyrir fram en megi ekki koma í stað lifandi flutnings. Þetta sé gert til þess að tryggja heillindi hvers flutnings og tryggja það að áhorfendur heyri sönginn í hverju lagi sem flutt er í beinni útsendingu.
Eurovision Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Fleiri fréttir Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Sjá meira