Lífsnauðsynlegur sigur Júlíusar Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 19:28 Júlíus Mar Júlíusson hefur verið fastamaður í vörn norska liðsins eftir skiptin frá KR í fyrra. vísir / jón gautur Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem vann langþráðan sigur, 2-1, á Molde í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið fer upp úr fallsæti með sigri dagsins.
Kristiansund hafði verið í tómu tjóni í deildinni fyrir leik dagsins, ekki unnið í síðustu sex leikjum og þar af tapað fimm. Ekki var búist við miklu af liðinu er Molde, sem er í baráttu um Evrópusæti í efri hluta deildarinnar, kom í heimsókn í dag. Kristiansund var nýbúið að losa sig við Hrannar Snæ Magnússon, sem gekk í raðir Víkings á föstudaginn var, eftir að hafa mistekist að festa sig í sessi hjá norska liðinu. Júlíus Mar hefur verið fastamaður í vörn norska liðsins og byrjaði að venju við hlið fyrirliðans Dan Peter Ulvestad í miðvarðarstöðunni. Þeir lokuðu nokkuð vel á Molde-liðið í dag og þá átti Bandaríkjamaðurinn Michael Lansing stórleik á bakvið þá í markinu. Sander Hestetun Kilen kom liðinu yfir um miðjan fyrri hálfleik og Leander Alvheim skoraði síðara markið þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir. Það fór aðeins um stuðningsmenn Kristiansund þegar Trent Koné-Doherty minnkaði muninn á 90. mínútu og Molde lá á heimamönnum í uppbótartímanum en leiknum lauk 2-1. Kristiansund vinnur því fyrsta sigurinn í sjö leikjum og fer upp af fallsvæðinu, í 14. sæti, sem er umspilssæti um fall. Liðið er jafnt Sandefjord að stigum, sem er í 13. sæti, með 15 stig. Álasund er með 14 stig í næst neðsta sætinu og Start á botninum með 10 stig.
Norski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira