Körfubolti

Strákarnir spila um fimm­tánda sætið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sturla Böðvarsson var stigahæstur hjá Íslandi í dag.
Sturla Böðvarsson var stigahæstur hjá Íslandi í dag. Mynd/Fiba

Landslið drengja í körfubolta, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, laut í lægra haldi fyrir Norður-Makedóníu, 86-74, á EM U18 sem fram fer í Króatíu. Liðið spilar því um fimmtánda sæti á mótinu.

Ljóst var fyrir leik dagsins að liðið sem ynni myndi spila um 13. sætið en tapliðið um það 15.

Ísland hóf leikinn töluvert betur og leiddi 25-9 eftir fyrsta leikhlutann. Makedónar svöruðu hins vegar rækilega fyrir sig með því að skora 35 stig gegn tólf í öðrum leikhlutanum.

Úr varð spennandi leikur en Norður-Makedónía leiddi þó allt til loka. Ísland mun því spila við Aserbaídsjan á morgun í síðasta leik mótsins upp á 15. sætið.

Sturla Böðvarsson og Leó Steinsen voru stigahæstir í liði Íslands með 14 stig hvor í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×