Fleiri en einn hafi verið að verki Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. júlí 2026 10:39 Keyrt hafi verið a einn mink í nótt. „Það var bara svona lán í óláni myndi ég segja,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfelssbæjar. Samsett Aðgerðir í Mosfellsdal gengu vel í nótt og halda áfram í dag að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Tilkynningar næturinnar megi telja á fingrum annarrar handar en aðgerðarstjórnin vilji vera með vaðið fyrir neðan sig. Honum þyki ekki ólíklegt að um sömu aðila sé að ræða og í innbroti í svínabú og kjúklingabú fyrr í sumar og að fleiri en einn hafi verið að verki.
Gærdagurinn hafi verið annasamasti dagur hans í starfi bæjarstjóra síðan hann tók við bæjarstórastólnum í maí síðastliðnum. „Það var ófremdarástand,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann hafi fyrst og fremst haft áhyggjur af lífríkinu og dýrunum í dalnum. Aðgerðir gærdagsins og næturinnar hafi gengið vel en til að byrja með hafi aðstæðurnar litið heldur illa út til að byrja með en skýrari mynd hafi komið á málið upp úr hádegi. „Það voru bara tilkynningar á fingrum annarrar handar sem komu þar inn. Það komu meira að segja tilkynningar frá Grafarvogi og Grafarholti en ég myndi segja að það væri ógjörningur að það kæmi frá þessu búi. En það er bara gott að fólk sé vel vakandi og tilkynni og við komum þeim ábendingum á framfæri.“ „Við höldum vaktinni áfram. Það leynast væntanlega einhverjir, einn og einn, þarna úti en við þurfum bara að finna þá því annars gæti þetta orðið meira vandamál til lengri tíma.“ Hleypt úr sjö þúsund búrum Ekki sé hægt að segja til um tölu minka sem sluppu út í gær en að um sjö þúsund búr minkabúsins hafi verið opnuð og að fleiri en einn hafi staðið að verknaðinum. „Þetta er ekkert smá skemmdarverk. Þetta er engin smá aðgerð sem fer fram þarna um nóttina og ég myndi ekki segja að það væri í miklum anda dýraverndar að sleppa þessu lausu öllu.“ Þeir eru að gera það sama og þeir væntanlega hafa verið að gera á hinum búunum. Búnir að fara inn í svínabú og alifuglabú.“ Þannig að það er grunur um að þetta séu sami aðili eða sömu aðilar? „Mér finnst það ekki ólíklegt.“ Lögregla haldi bæjarstjóranum upplýstum og þau hafi þegar fundað nokkrum sinnum og stefni á að gera það aftur í dag. Aðgerðarstjórnin hafi ráðlagt fólki á svæðinu að halda dýrum sínum inni. Þið eruð ekki að útiloka að minkurinn gæti sótt inn í bæinn? „Hugsanlega, en bara vera með vaðið fyrir neðan sig. Þessi dýr vita ekkert, þau hafa örugglega ekkert séð sólarljós áður. Þau vita ekkert hvað hænur eru eða fólk eða barnavagnar.“ Einhverjir hafi tjáð honum að 90 prósent dýranna myndu ekki lifa af á eigin spýtur í náttúrunni en aðrir hafi sagt þá aðlagast. „Ég er nú ekki mikill minkasérfræðingur, ekki hingað til, en eitthvað hefur maður lært síðasta sólarhringinn,“ segir Hilmar.
Dýr Loðdýrarækt Mosfellsbær Minkum sleppt í Mosfellsdal Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira