„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. júlí 2026 07:00 Sædís Lea Lúðvíksdóttir og Henrik Bjarnason giftu sig í frönskum kastala. Nataliia Madii „Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag,“ segir Sædís Lea Lúðvíksdóttir sem giftist ástinni sinni Henriki Bjarnasyni við draumkennda athöfn í kastala í Frakklandi á dögunum. Hjónin eru sammála um að þetta hafi án alls efa verið skemmtilegasta upplifun lífs þeirra.
Sædís starfar á fjármálasviði hjá LSR lífeyrissjóði og Henrik er kennari og ráðgjafi hjá Klettabæ en þau eru bæði fædd árið 1996. Þau byrjuðu saman fyrir þrettán árum og eiga saman dótturina Leu. Blaðamaður ræddi við Sædísi um stóra daginn. View this post on Instagram A post shared by Sædís Lea Lúðvíksdóttir (@saedislea) Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við trúlofuðum okkur í París fyrir tæpum tveimur árum. Henrik hafði gefið mér ferðina í afmælisgjöf stuttu áður og þetta var í raun smá óvissuferð. Ég vissi ekki á hvaða hóteli við vorum eða hvað planið væri. Við vorum nýbúin að borða og ætluðum að labba yfir á ballettsýningu í Óperuhúsinu þegar hann sagðist hafa gleymt miðunum uppi á hótelherbergi. Þá var hann búinn að plotta eitthvað með hótelinu og þar beið okkar kampavín og næsheit þegar hann bað mín. Við vorum því bara tvö inni á hótelherbergi sem var algjörlega fullkomið. Frakkland á stóran stað í hjörtum brúðhjónanna.Nataliia Madii Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við vorum búin að vera að skipuleggja brúðkaupið síðan í júlí í fyrra. Þá fórum við út til Frakklands til að skoða venue-ið og eftir þá ferð bókuðum við kastalann og buðum svo gestunum okkar stuttu síðar svo allir hefðu sem mestan fyrirvara til að skipuleggja ferðina. Lea, Henrik og Sædís á stóra deginum.Nataliia Madii Voruð þið strax ákveðin í að halda þetta erlendis? Nei, alls ekki. Ég sá mig aldrei fyrir mér halda stórt brúðkaup erlendis en Henrik var aðeins hrifnari af þeirri hugmynd. Við vorum líka að velta þeirri hugmynd fyrir okkur að halda sveitabrúðkaup á Íslandi, en eftir að við sáum kastalann í Frakklandi var eiginlega ekki aftur snúið. Grænt og gullfallegt umhverfi. Nataliia Madii Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Gjörsamlega fullkominn frá A-Ö. Þetta var það skemmtilegasta sem við höfum upplifað. Dagurinn byrjaði bara rólega og fólk fékk sér morgunmat og mímósur. Við stelpurnar byrjuðum aðeins fyrr að gera okkur til en flestir gestirnir sem gistu á svæðinu voru mættir í sundlaugina. Ragnheiður sá um förðunina mína og Embla vinkona mín gerði hárið. Henrik gerði sig til með strákunum og var með fyrirpartý fyrir athöfn. Ragnheiður farðaði Sædísi.Nataliia Madii Klukkan fjögur hófst svo athöfnin. Pabbi minn gaf okkur saman og það var svo fallegt og dýrmætt. Sara systir Henriks söng lag. Faðir Sædísar gaf hjónin saman.Nataliia Madii Þetta var mjög einlæg stund og ég held að allir gestir hafi verið farnir að gráta á einhverjum tímapunkti. Eftir athöfnina var svo „cocktail hour“ þar sem veisluþjónustan bauð upp á alls konar snittur og kampavín á meðan við fórum í myndatöku. Henrik og vinir hans flottir.Nataliia Madii Að henni lokinni tók svo við borðhald þar sem veislustjórarnir og gestirnir okkar toppuðu sig algjörlega með fallegum ræðum og skemmtilegum atriðum. Eftir borðhald og fyrsta dansinn var síðan haldið í partý-ið og dansað langt fram á nótt. Hópurinn dansaði langt fram á nótt.Nataliia Madii Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið? Já! Við vorum með rehearsal dinner kvöldið áður þar sem allir hittust og borðuðu saman. Svo var sundlaug á svæðinu sem varð eiginlega óvart að sundlaugarpartýi bæði á brúðkaupsdaginn og aftur daginn eftir. Það var svo skemmtilegt að hafa svona afslappaðar stundir með öllum gestunum líka. Gestir voru í miklum gír alla ferðina.Nataliia Madii Voruð þið sammála í skipulaginu? Já, mjög! Við vorum ekki með wedding planner heldur skipulögðum allt sjálf. Við áttum reglulega „brúðkaupsdeit“ þar sem við fórum yfir verkefnin og tókum ákvarðanir saman. Ég þarf yfirleitt aðeins lengri tíma til að ákveða mig en Henrik, sem er fljótari að taka ákvarðanir. Sem betur fer vorum við með sömu sýn og sömu áherslur á hvernig við vildum hafa dagana og það gerði allt skipulagið svo auðvelt og skemmtilegt. Svo er ég líka mikil Excel-manneskja og finnst ótrúlega gaman að skipuleggja og setja upp plön, þannig að ég naut þess eiginlega bara að vinna í þessu. Hjónin nutu þess í botn að skipuleggja brúðkaupið. Dagurinn var fullkominn og Lea dóttir þeirra skemmti sér sömuleiðis mjög vel eins og sjá má.Nataliia Madii Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu? Okkur fannst mikilvægast að upplifun gesta og skemmtilegt flæði væri í fyrirrúmi. Gestir voru að ferðast langa leið og vildum við tryggja að allir væru að njóta, góður matur, nóg vín og gleði. Við reyndum að of hugsa ekki smáatriðin og leyfa þessum dögum líka að flæða. Hjónin voru ekki að ofhugsa smáatriðin og leyfðu deginum að flæða vel. Nataliia Madii Hvaðan sóttuð þið innblástur? Alls staðar. Við skoðuðum auðvitað samfélagsmiðla en vorum líka dugleg að skrifa niður hugmyndir. Það var mikilvægt fyrir okkur að gera þetta algjörlega eftir okkar höfði frekar en að reyna að fylgja einhverjum ákveðnum trendum. Við vildum að þessi dagur endurspeglaði okkur. Dagurinn endurspeglaði hjónin, sem eru miklir stuðboltar.Nataliia Madii Hvað stendur upp úr? Það er eiginlega ótrúlega erfitt að velja bara eitt augnablik. Athöfnin sjálf stendur mjög sterkt upp úr, að sjá alla sem við elskum saman komna á einum stað og fá að fagna með þeim. Það sem stendur kannski mest upp úr er stemningin allan daginn, báða dagana. Hvað allir voru glaðir, hvað það var mikið hlegið, dansað og grátið af gleði. Það er ótrúlega sérstök tilfinning að líta í kringum sig og sjá allt uppáhalds fólkið sitt saman og vita að það hafi ferðast alla þessa leið til að fagna með okkur. Við erum bara svo ótrúlega þakklát. Brúðhjón og gestir hlóu, dönsuðu og grétu úr gleði.Nataliia Madii Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Alexander Freyr vinur okkar sá um tónlistina á rehearsal kvöldinu sem setti algjörlega vibeið fyrir næstu daga. Besta fólkið okkar, Elma Rún Hermannsdóttir og Hlynur Bjarnason, voru veislustjórar og gjörsamlega negldu það. Við komumst síðan að því í brúðkaupinu að allt okkar fólk virðist kunna að syngja. Litla systir Henriks og frænka mín voru með söngatriði, strákahópurinn hans Henriks var með söngatriði og æskuvinkonur mínar líka. Svo eigum við hæfileikaríka vini eins og Patrik Atlason og Egil Ploder sem héldu uppi stuðinu í partýinu seinna um kvöldið. Að lokum tók DJ við sem við Henrik kynntumst fyrir algjöra tilviljun þegar við fórum út að skemmta okkur í París í mars. Okkur fannst hann svo frábær að við spurðum hvort hann væri til í að spila í brúðkaupinu okkar og sem betur fer sagði hann já! Franskur DJ þeytti skífum og brúðhjónin tóku meðal annars lagið.Nataliia Madii Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Já, hvað við náðum að njóta daganna mikið. Maður heyrir svo oft að brúðhjón séu á hlaupum allan daginn eða hreinlega muni ekki eftir sumu, en við upplifðum það alls ekki þannig. Svo kom okkur líka á óvart hvað þetta var brjálæðislega gaman! Við höfum aldrei skemmt okkur betur. Stemningin í gestunum var ótrúleg frá byrjun og við vildum bara ekki að kvöldið tæki enda. Það segir kannski allt sem segja þarf að við Henrik vorum með þeim síðustu út af dansgólfinu um nóttina. Hjónin skemmtu sér vel og lengi og voru síðust út af dansgólfinum.Nataliia Madii Hvað voru margir gestir? 100 gestir. Kakan var mjög stór og passaði vel fyrir 100 gesti!Nataliia Madii Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það? Það gekk alveg lygilega vel að velja! Um leið og við ákváðum að gifta okkur í júlí í fyrra fór ég á netið og fann þennan fullkomna kjól frá franska tískuhúsinu Jacquemus, sendi hann á vinkonur mínar sem voru sammála að hann væri Sædísar-legur svo ég keypti hann. Hann beið svo bara inni í skáp í heilt ár áður en ég fór með hann á saumastofu og lét laga hann til. Ég vildi síðan vera í öðruvísi vibe-i í rehearsal og keypti mér blúndusett frá merkinu Deme by Gabriella sem er sérsaumað á Indlandi. Sædís gullfalleg í Jacquemus kjólnum með elegant slör. Nataliia Madii Henrik býr að góðum vin, Alexander Frey sem heldur úti Stílisinn.is. Þeir tóku fundi varðandi outfitin bæði kvöldin og vibe-ið sem þeir vildu hafa í takt við staðinn. Henrik lét sérsauma á sig smóking fyrir brúðkaupið og bætti við fylgihlutum til að fullkomna lúkkið. Við fórum svo til Parísar nokkrum mánuðum fyrir brúðkaupið og keyptum okkur brúðarskóna. Henrik fékk góðar tískuleiðbeiningar frá vini sínum Alexander Frey.Nataliia Madii Varstu með fataskipti? Já við vorum bæði með rehearsal outfit og svo að sjálfsögðu brúðkaups outfit. Eftir brúðkaupsveisluna hoppaði ég svo í annan kjól þegar við vorum á leið í partýið. Lea dáist að brúðarkjól mömmu sinnar, sem er frá franska tískurisanum Jacquemus.Nataliia Madii Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Fyrst og fremst myndi ég segja að það mikilvægasta sé að gera brúðkaupið algjörlega eftir ykkar höfði. Ekki pæla of mikið í því hvað öðrum finnst eða hvað er í tísku, þetta er ykkar dagur og hann á að endurspegla ykkur. Svo mæli ég líka rosalega með að eiga regluleg „brúðkaupsdeit“ þar sem þið farið yfir það sem er búið, hvað er næst á dagskrá og skipuleggið næstu skref. Það hjálpar til við að halda utan um allt svo ekkert gleymist, en gerir undirbúninginn líka miklu skemmtilegri. Undirbúningurinn er nefnilega stór hluti af upplifuninni og eitthvað sem okkur þótti ótrúlega gaman að. Hjónin héldu regluleg brúðkaupsdeit sem gerði undirbúninginn mjög skemmtilegan.Nataliia Madii Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu? Hún er æðisleg! Við héldum áfram að njóta í Frakklandi á meðan foreldrar mínir fóru heim til Íslands með dóttur okkar. Við vorum eiginlega bara svífandi um á bleiku skýi að rifja upp brúðkaupsdagana. Þó maður sé auðvitað pínu sorgmæddur að þetta sé búið, þá fylgir því líka ótrúlega notaleg tilfinning. View this post on Instagram A post shared by Sædís Lea Lúðvíksdóttir (@saedislea) Maður er búinn að hugsa um og skipuleggja þennan dag í svo langan tíma að það er smá frelsandi að geta loksins andað léttar og vita að allt gekk svo vel. Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag.
Brúðkaup Íslendingar erlendis Tíska og hönnun Mest lesið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Fleiri fréttir „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Sjá meira