Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Eiður Þór Árnason skrifar 28. júlí 2026 08:30 Enn er verið að meta tjón eftir skjálftann á eyjunni Kyushu. Wikimedia Commons/NASA Öflugur jarðskjálfti skók Kumamoto á japönsku eyjunni Kyushu í morgun og var hann 7,1 að stærð samkvæmt bráðabirgðamælingum. Japanska veðurstofan gaf út flóðbylgjuviðvörun vegna þessa.
Kyushu er þriðja stærsta eyja Japans og búa þar yfir tólf milljónir manna. Kjarnorkueftirlit Japans sagði að engin frávik hefðu fundist í þremur nálægum kjarnorkuverum vegna skjálftans. Skjálftinn fannst seint síðdegis að staðartíma. Almannavarnayfirvöld segja engar tilkynningar hafa borist um skemmdir á mikilvægum opinberum mannvirkjum og innviðum á svæðinu en yfirvöld væru enn að meta umfang tjónsins af völdum skjálftans. AP-fréttaveitan greinir frá. Ekki enn séð flóðbylgju Íbúar voru varaðir við áframhaldandi skjálftavirkni og þeir hvattir til að vera sérstaklega á varðbergi næstu tvo til þrjá daga vegna möguleika á öðrum stórum skjálfta. Shinji Kiyomoto hjá japönsku veðurstofunni sagði á blaðamannafundi að engin flóðbylgja hefði enn sést á landi vegna skjálftans og að stofnunin hygðist aflétta flóðbylgjuviðvöruninni tiltölulega fljótlega. Lestarferðir hafa verið stöðvaðar tímabundið á meðan öryggisskoðanir fara fram. Flugbrautinni á Aso Kumamoto-flugvellinum var lokað í kjölfar jarðskjálftans og er óljóst hvenær hún verður opnuð aftur. Fólk eigi að forðast strandlengjuna Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, hvatti íbúa til að forðast strandlengjuna en í fyrstu var gert ráð fyrir flóðbylgju sem gæti náð eins metra hæð. Hún sagði að ríkisstjórnin hefði sett á fót verkefnahóp til að safna upplýsingum, meta hugsanlegar skemmdir og undirbúa björgunaraðgerðir ef þörf krefur. „Við setjum líf fólks í forgang,“ sagði Takaichi og hvatti íbúa á þeim svæðum þar sem skjálftinn fannst vel til að sýna aðgát vegna hugsanlegra sterkra eftirskjálfta. Kumamoto varð fyrir mannskæðum jarðskjálfta árið 2016 þar sem yfir 50 fórust, 1.800 slösuðust og tugþúsundir heimila skemmdust eða eyðilögðust. Skjálftinn mældist 7,1 að stærð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Japan Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira