Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar 28. júlí 2026 07:34 Umræðu um dánaraðstoð fylgja oft rangfærslur og villandi fullyrðingar sem geta ýtt undir ótta og vantraust. Slíkar fullyrðingar hafa einnig heyrst hér á landi. Hér eru sex staðreyndir um framkvæmd dánaraðstoðar, byggðar á upplýsingum sem áströlsku samtökin Voluntary Assisted Dying South Australia hafa tekið saman með vísan til rannsókna og opinberra gagna. STAÐREYND 1: LÍKNARMEÐFERÐ GETUR EKKI LINAÐ ALLAR ÞJÁNINGAR Ástralía býr yfir einu öflugasta líknarmeðferðarkerfi heims. Líknarmeðferð miðar að því að lina þjáningar og bæta lífsgæði fólks með alvarlega eða ólæknandi sjúkdóma. Hún felur meðal annars í sér meðferð við verkjum og öðrum einkennum og sálrænan, félagslegan og andlegan stuðning við sjúklinga og aðstandendur. Regnhlífarsamtökin Palliative Care Australia viðurkenna þó að jafnvel besta líknarmeðferð geti ekki linað allar þjáningar. Fyrir þann litla hóp sem býr við óbærilegar þjáningar við lífslok getur dánaraðstoð verið mannúðlegur valkostur. Beiðnin þarf að vera lögð fram af frjálsum vilja eftir að einstaklingurinn hefur fengið upplýsingar um líknarmeðferð og önnur úrræði sem standa honum til boða. STAÐREYND 2: DÁNARAÐSTOÐ OG SJÁLFSVÍG ERU Í GRUNDVALLARATRIÐUM ÓLÍK FYRIRBÆRI Sjálfsvíg tengist oft bráðri vanlíðan, geðrænum vanda eða aðstæðum þar sem einstaklingur sér ekki aðra leið út úr þjáningum sínum. Dánaraðstoð er hins vegar lögbundið úrræði fyrir einstakling sem nálgast lífslok vegna ólæknandi og langt gengins sjúkdóms og uppfyllir ströng skilyrði laganna. Áströlsk samtök á sviði sjálfsvígsforvarna og geðheilbrigðismála hafa hvatt til þess að dánaraðstoð sé ekki kölluð sjálfsvíg og að þessi tvö hugtök séu ekki tengd saman. Samkvæmt opinberum gögnum frá Viktoríu höfðu um 80% þeirra sem óskuðu eftir dánaraðstoð fengið líknarmeðferð eða voru í umsjá líknarmeðferðarþjónustu. Margir sem fá lyfið afhent nota það ekki, ýmist vegna þess að þeir deyja af sjúkdómnum eða ákveða að nýta ekki úrræðið. Fyrir marga felst þó öryggi og hugarró í því að vita að valkosturinn sé fyrir hendi. Engar trúverðugar vísbendingar hafa komið fram um að lög um dánaraðstoð leiði til aukinnar sjálfsvígstíðni. Áströlsk yfirvöld hafa þvert á móti bent á að dauðvona fólk taki stundum eigið líf við hættulegar og oft áfallavaldandi aðstæður. Lögbundin dánaraðstoð geti veitt öruggari og mannúðlegri leið við lífslok. STAÐREYND 3: EKKI ER UM ÓHJÁKVÆMILEG RENNIBRAUTARÁHRIF AÐ RÆÐA Andstæðingar dánaraðstoðar halda því stundum fram að lög um dánaraðstoð leiði til svokallaðra rennibrautaráhrifa, það er að þau verði óhjákvæmilega rýmkuð þannig að þau nái síðar til hópa sem þeim var upphaflega ekki ætlað að ná til. Lög um dánaraðstoð geta breyst, rétt eins og önnur lög. Ekki er þó hægt að fullyrða að rýmkun þeirra sé sjálfkrafa eða óhjákvæmileg. Þar sem breytingar hafa verið gerðar á lögunum hafa þær farið fram með sérstökum lagabreytingum og að undangenginni opinberri og pólitískri umræðu. Í áströlsku ríkjunum hafa grundvallarskilyrði laganna í meginatriðum haldist stöðug frá gildistöku þeirra. Lögin í Belgíu og Hollandi voru frá upphafi víðtækari en áströlsku lögin. Þau voru ekki aðeins ætluð dauðvona fólki heldur einnig einstaklingum með sjúkdóm eða heilsubrest sem veldur óbærilegum þjáningum sem ekki er unnt að lina. Flestir sem nýta lögin þar eru með krabbamein, en þau geta einnig náð til alvarlegra hrörnunarsjúkdóma og langvinnra sjúkdóma. Í afar sjaldgæfum tilvikum geta þau náð til fólks með langvarandi og alvarlegar geðrænar þjáningar. Það samræmist skilyrðum laganna frá upphafi og er því ekki sjálfkrafa sönnun um rennibrautaráhrif. Í Bandaríkjunum hafa grundvallarskilyrði laganna almennt haldist svipuð, þótt einstök framkvæmdarákvæði hafi verið endurskoðuð. STAÐREYND 4: GÖGN SÝNA EKKI AUKNA HÆTTU FYRIR FÓLK MEÐ FÖTLUN Fötlun eða geðsjúkdómur eitt og sér veitir ekki aðgang að dánaraðstoð í Ástralíu. Einstaklingur þarf einnig að vera með banvænan og langt genginn sjúkdóm og uppfylla önnur skilyrði laganna. Ritrýnd rannsókn á framkvæmd dánaraðstoðar í Oregon og Hollandi fann ekki vísbendingar um aukna áhættu fyrir fólk með líkamlega fötlun eða langvinna sjúkdóma. STAÐREYND 5: LÖGIN FELA Í SÉR SÉRSTAKAR VARNIR GEGN ÞRÝSTINGI OG MISNOTKUN Aldraðir geta orðið fyrir misnotkun og þrýstingi í samfélaginu, óháð því hvort dánaraðstoð er heimil. Þess vegna þurfa lögin að fela í sér ströng skilyrði og öflugar öryggisráðstafanir. Í Ástralíu þarf meðal annars mat óháðra og sérþjálfaðra lækna, formlega og ítrekaða beiðni einstaklingsins og eftirlit með framkvæmd laganna. Einstaklingurinn þarf að hafa hæfni til ákvarðanatöku og vera með langt genginn sjúkdóm sem líklega leiðir til dauða innan þess tíma sem lögin tilgreina. Eftirlitsnefndin í Viktoríu greindi frá því í ársskýrslu sinni fyrir 2024–2025 að engar tilkynningar hefðu borist um að fólk hefði verið þvingað eða beitt óeðlilegum þrýstingi til að fá dánaraðstoð. Nefndin greindi hins vegar frá dæmum um þrýsting í gagnstæða átt, þar sem fólk væri hvatt til að nýta ekki úrræðið. Eftirlitsnefndin í Suður-Ástralíu greindi heldur ekki frá brotum tengdum þvingun eða misnotkun lyfjanna á sama skýrsluári. STAÐREYND 6: Í BELGÍU GILDA AFAR ÞRÖNG SKILYRÐI UM DÁNARAÐSTOÐ BARNA Áströlsku lögin um dánaraðstoð ná aðeins til fullorðinna einstaklinga sem hafa hæfni til ákvarðanatöku. Í Belgíu getur barn hins vegar fengið dánaraðstoð við afar þröng skilyrði. Barnið þarf að vera með ólæknandi og banvænan sjúkdóm og búa við stöðugar og óbærilegar þjáningar sem ekki er unnt að lina. Tveir læknar þurfa að staðfesta að skilyrðin séu uppfyllt og barnageðlæknir eða sálfræðingur þarf að staðfesta að barnið skilji merkingu og afleiðingar beiðninnar. Foreldrar eða forráðamenn þurfa einnig að veita samþykki sitt. Röksemdin að baki ákvæðinu er sú að þjáningar banvænt veikra barna geti í einstaka tilvikum verið jafn óbærilegar og þjáningar fullorðinna. Frá því ákvæðið tók gildi árið 2014 hefur því aðeins verið beitt í sjö tilvikum, þar af einu árið 2025. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Dánaraðstoð Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun