Lýsa eftir þekktum öfgamanni Samúel Karl Ólason skrifar 26. júlí 2026 07:25 Abdul B er 21 árs gamall. Lögreglan í Berlín biður fólk um að nálgast hann ekki þar sem hann sé hættulegur og gæti verið vopnaður. Lögreglan í Berlín, AP/Ebrahim Noroozi Lögreglan í Berlín hefur birt mynd af manni sem grunaður er um að hafa ekið bíl inn í þvögu fólks í borginni í gær. Þar var verið að halda hinsegin daga en einn lét lífið og sextán eru særðir. Lögreglan hefur birt mynd af manninum, sem sagður er vera 21 árs gamall og heita Abdul B.
Það var kona sem lét lífið. Þrír særðust lífshættulega, átta alvarlega og fimm lítillega. Abdul B er sagður hafa verið í bílnum og flúið úr honum, mögulega með öðrum. Svo virðist einnig sem að Abdul hafi stungið að minnsta kosti einn á flóttanum. Sjá einnig: Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Verði fólk vart við Abdul hefur lögreglan ítrekað að hann sé mögulega vopnaður og sé hættulegur. Lögreglan hafði áður sagt að hinn grunaði í málinu tengdist íslömskum öfgahreyfingum í Berlín. AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni lögreglunnar að ekkert liggi fyrir hvað varðar tilefni árásarinnar. Abdul er grunaður um að hafa ekið sendiferðabíl inn í þvögu fólks í Berlín en hann endaði á tréi og flúði af vettvangi á hlaupum. Friedrich Merz. kanslari Þýskalands, hefur fordæmt árásina. Hann heitir því að hún verði rannsökuð ítarlega og refsað verði fyrir hana. Wir sind offen und freiheitsliebend - und das werden wir auch bewahren und verteidigen. Die Tat wird aufgeklärt und mit aller Härte verfolgt.Meine Gedanken sind bei den Betroffenen und ihren Angehörigen. Ich wünsche den Verletzten rasche Genesung und danke allen Einsatzkräften.— Bundeskanzler Friedrich Merz (@bundeskanzler) July 26, 2026 Mikið um sambærilegar árásir Árásir sem þessar hafa verið nokkuð tíðar í Þýskalandi á undanförnum árum. Í maí dóu tveir og þrír særðust alvarlega þegar maður ók bíl sínum eftir göngugötu í Leipzig. Þá var 33 ára þýskur maður handtekinn og var hann talinn eiga við geðræn vandamál að stríða. Tveir létu lífið og ellefu særðust þegar fertugur maður ók á gangandi vegfarendur í Mannheim í mars í fyrra. Sá var einnig talinn glíma við geðræn vandamál og fundust engar vísbendingar um tiltekið tilefni. Mánuði áður, í febrúar, ók 24 ára maður inn í þvögu fólks í München og myrti konu og tveggja ára dóttur hennar. Tugir til viðbótar særðust. Verið er að rétta yfir manninum sem er 24 ára gamall og frá Afganistan. Hann er sagður vera öfgamaður og íslamisti. Þá dóu sex og rúmlega tvö hundruð særðust í árás á jólamarkað í Magdeburg í desember 2024. Maður frá Sádi-Arabíu var dæmdur í lífstíðarfangelsi í síðasta mánuði fyrir árásina. Hann var sagður hafa gert árásina að hluta til vegna fordóma í garð múslíma og er sagður aðhyllast fjarhægriöfl. Í júní 2022 ók 29 ára Þjóðverji inn í þvögu fólks í Berlín. Þá dó kennari og fjórtán nemendur hennar særðust. Þá var árásarmaðurinn einnig sagður eiga við geðræn vandamál að stríða. Fimm létu lífið, þar á meðal ungabarn, og fimmtán særðust í Trier í desember 2020 þegar 51 árs gamall ölvaður Þjóðverji ók á göngugötu. Í febrúar það sama ár ók maður á tugi manna og barna á hátíð í Volkmarsen. Enginn lét lífið en maðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir fjölmargar morðtilraunir. Í desember 2016 myrti hælisleitandi frá Túnis, sem sagður er hafa tengst öfgahópum, ökumann sendiferðabíls í Berlín. Hann stal bílnum og ók honum inn í þvögu fólks á jólamarkaði. Ellefu létu lífið og tugir særðust. Maðurinn, sem hét Anis Amri, var skotinn til bana af lögregluþjónum á Ítalíu nokkrum dögum síðar.
Þýskaland Hinsegin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira