Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2026 15:02 Donald Trump segist viss um að Sádar muni samþykkja að viðurkenna tilvist Ísrael. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segir að samkomulag sem skrifað var undir í gær milli Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu, um að koma upp kjarnorku í síðarnefnda ríkinu, feli í sér að Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael. Þar að auki verði þeir að opna formlega á pólitísk samskipti ríkjanna á milli, með því að verða aðilar að Abraham-sáttmálunum svokölluðu.
Þetta kemur fram í „sannleik“ sem hann skrifaði á Truth Social en hafði ekki komið fram í tilkynningum um samkomulagið. Trump sagðist sannfærður um að þetta myndu Sádar samþykkja. Sjá einnig: Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusamning Bahrain, Sameinuðu arabísku furstadæmin og önnur ríki hafa orðið aðilar að sáttmálunum en Sádar hafa hingað til ekki viljað gera það án þess að fyrir liggi greinagóð áætlun sem leiði til palestínsks ríkis við botn Miðjarðarhafs. Það hafa Ísraelar þvertekið fyrir. Færsla Trumps á Truth Social. Joe Biden, síðasti forseti Bandaríkjanna, reyndi einnig að fá Sáda til að viðurkenna tilvist Ísrael í tengslum við samkomulag um kjarnorku en þær áætlanir gengu ekki eftir, að stórum hluta vegna árásar Hamas og annarra á Ísrael þann 7. október 2023. Eftir að hann varð aftur forseti sleit Trump hugmyndina um tilvist Ísrael frá kjarnorkuviðræðum við konungsfjölskyldu Sádi-Arabíu, samkvæmt frétt New York Times. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur tekið yfirlýsingu Trumps fagnandi og sagt að viðurkenning Sáda á tilvist Ísrael yrði stærðarinnar skref í átt að friði í Mið-Austurlöndum. Sádar hafa ekki tjáð sig opinberlega enn. Trump sagði einnig að samkomulagið myndi ekki leyfa Sádum að auðga eigið úran en heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs hafa sagt að það sé rangt hjá Trump. Samkomulagið feli í sér að yfir tveggja ára tímabil eigi stjórnvöld ríkjanna beggja að taka til skoðunar hvort Sádar geti og eigi að auðga eigið úran.
Bandaríkin Sádi-Arabía Ísrael Kjarnorka Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira