Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 08:30 Jay Crouch er í fjórða sætinu eftir fyrsta daginn en Madeline Sturt gerði betur og er í þriðja sætinu. @maddiesturt Heimsleikarnir í CrossFit byrjuðu með sögulegri niðurstöðu í fyrstu greininni í gær. Hvað var sögulegt? Jú, sigurvegararnir eru að fara að gifta sig.
Ástralarnir Jay Crouch og Madeline Sturt unnu fyrstu greinina á heimsleikunum en þau eru trúlofuð og ætla að gifta sig í desember. Þetta er í fyrsta sinn sem par vinnur sömu grein í tuttugu ára sögu heimsleikanna. Fyrsta greinin var þegar orðin söguleg því þetta var sama fyrsta grein og keppt var í á fyrstu heimsleikunum árið 2007. „The Hopper“ hjálpaði til við að skilgreina eðli keppninnar. Hún var hönnuð af Dave Castro, sem lengi hefur verið framkvæmdastjóri CrossFit-leikanna, og var notast við skammtara sem var fylltur með nöfnum á hreyfingum og æfingar voru dregnar af handahófi til að ákvarða æfinguna. Þetta ófyrirsjáanlega snið reyndi á alla þætti líkamsræktar og aðlögunarhæfni íþróttamannsins frekar en að verðlauna sérhæfingu. Hopper var meira en bara opnunargrein, hún kom á fót hugmyndafræði CrossFit-leikanna um víðtæka, almenna líkamlega færni og er enn ein af þekktustu æfingum í sögu íþróttarinnar. View this post on Instagram A post shared by FloElite (@floelite) Madeline Sturt tryggði sér sigurinn með frábærum endaspretti en hún vann sína grein á undan kærastanum. Þetta eru sjöundu heimsleikar hennar en í fyrsta sinn sem hún vinnur grein. Sú sem vann þessa grein þegar keppt var í henni síðast kláraði hana á 9 mínútum og 48 sekúndum en Sturt kláraði á 7 mínútum og 58 sekúndum. Var því næstum því tveimur mínútum fljótari. „Það kemur mér ekki mikið á óvart því CrossFit-íþróttin hefur breyst mikið á þessum tíma og bara síðan ég tók fyrst þátt árið 2015. Þá var ég bara barn og núna er ég að keppa við nítján ára börn,“ sagði Madeline Sturt og hló. Hún var ekki spurð út í kærastann enda var hann þá ekki búinn að vinna. Jay Crouch kláraði greinina á sjö mínútum og tíu sekúndum sem var sex mínútum hraðar en sá sem vann hana fyrir tuttugu árum. Hann sá því kærustu sína vinna sína grein fyrst og lék það svo eftir sjálfur. „Þetta er klikkað en við hugsum bæði þannig að við viljum halda okkur á okkar akrein þessa vikuna. Við þurfum að vera sjálfelsk þessa viku og einbeita okkur að okkur sjálfum til að eiga möguleika á því að ná markmiðum okkar og verða best í heimi. Þetta gengur vel hjá okkur og ég held að við séum besta parið á þessum heimsleikum,“ sagði Jay Crouch brosandi. Jay Crouch er í fjórða sætinu eftir fyrsta daginn en Madeline Sturt gerði betur og er í þriðja sætinu. View this post on Instagram A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames)
CrossFit Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira