Draumurinn rætist hjá Bergrós í dag á rosalegum fyrsta keppnisdegi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 08:33 Bergrós Björnsdóttir var hress og kát og örugglega mjög spennt fyrir fyrsta keppnisdeginum á heimsleikunum í CrossFit. @bergrosbjornsdottir Bergrós Björnsdóttir hefur í dag keppni á heimsleikunum í CrossFit en hún keppir í ár í fyrsta sinn í flokki fullorðinna.
Fyrsti dagurinn er enginn smá dagur fyrir okkar konu því það verða alls sjö greinar á dagskrá í dag. „Aldrei gefast upp í því að elta draumana þína,“ skrifaði Bergrós og birti myndir af sér skrá sig inn á mótið. Þar má sjá hana með mikinn fjölda af keppnisfatnaði sem hún fékk afhentan auk þess sem hún sýnir frá því þegar hún fór í myndatöku og viðtöl. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir) Bergrós veit hvernig sex af sjö greinum dagsins líta út en það er ekki enn búið að tilkynna lokagrein dagsins. Þetta eru tuttugustu heimsleikarnir í sögunni og í tilefni af þeim tímamótum verður fyrsta greinin grein sem keppt var í á fyrstu heimsleikunum árið 2007. Greinin heitir „The 2007 Hopper“. Á fyrstu CrossFit-leikunum árið 2007, sem haldnir voru á búgarði Dave Castro í Aromas í Kaliforníu, notuðu skipuleggjendur bókstaflegan lottókassa til að ákvarða fyrstu keppnisgreinina. Hreyfingar og æfingaþættir voru settir ofan í hann og síðan dregnir af handahófi á keppnisdegi. Æfingin sem kom upp úr pottinum var „The 2007 Hopper“. Hún býður upp á þúsund metra róður og síðan fimm umferðir af upphífingum og spyrnulyftum en þessi krefjandi grein varð ein af þekktustu þrekraunum í sögu CrossFit-leikanna. Fyrsta greinin hefst klukkan níu fyrir hádegi á staðartíma í Kaliforníu eða klukkan fjögur á íslenskum tíma. View this post on Instagram A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames)
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Sjá meira