Körfubolti

Strákarnir fengu silfur á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska U-20 árs landsliðið í körfubolta karla vann sig upp í A-deild Evrópumótsins.
Íslenska U-20 árs landsliðið í körfubolta karla vann sig upp í A-deild Evrópumótsins. kkí

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri tapaði fyrir Úkraínu, 64-74, í úrslitaleik B-deildar Evrópumótsins í kvöld. Ísland var öruggt með sæti í A-deild eftir sigur á Svíþjóð í undanúrslitum í gær.

Úkraínumenn voru sterkari aðilinn í úrslitaleiknum í kvöld og leiddu nær allan tímann.

Sjö stigum munaði á liðunum í hálfleik, 27-34, en Ísland minnkaði muninn í fjögur stig, 46-50, fyrir lokaleikhlutann.

Þar reyndist Úkraína öflugri og landaði tíu stiga sigri, 64-74.

Ásmundur Múli Ármannsson skoraði sautján stig fyrir íslenska liðið í leiknum í kvöld og gaf sex stoðsendingar.

Magnús Dagur Svansson skoraði fjórtán stig, tók ellefu fráköst og varði þrjú skot. Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði ellefu stig og tók sex fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×