Fótbolti

Annar þrjú núll sigur hjá strákunum hans Freys

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rosenborg hefur unnið báða leikina undir stjórn Freys Alexanderssonar án þess að fá á sig mark.
Rosenborg hefur unnið báða leikina undir stjórn Freys Alexanderssonar án þess að fá á sig mark. Getty/Alessandro Sabattini

Freyr Alexandersson hefur sannarlega fengið draumabyrjun í nýju starfi sínu sem þjálfari Rosenborg. Liðið hefur unnið 3-0 sigra í fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Freys.

Rosenborg vann 3-0 sigur á Kristiansund um síðustu helgi og sigraði Start með sömu markatölu í dag.

Amin Chiakha kom Rosenborg yfir með marki úr vítaspyrnu á 35. mínútu og þannig var staðan allt þar til komið var fram í uppbótartíma.

Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jók Simen Bolkan Nordli forskot Rosenborg í 0-2. Tveimur mínútum síðar skoraði Chiakha annað mark sitt og þriðja mark gestanna frá Þrándheimi.

Rosenborg er komið upp í 10. sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur unnið jafn marga sigra í síðustu tveimur leikjum og það gerði í fyrstu ellefu leikjum tímabilsins.

Á föstudaginn bíður spennandi verkefni Freys og félaga en þá mæta þeir Manchester United í æfingaleik á Lerkendal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×