ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Agnar Már Másson skrifar 17. júlí 2026 10:49 Icelandair hefur bókfært 110,2 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað frá ársbyrjun 2022 til loka mars á þessu ári. Icelandair/Ágúst Sigurjónsson Evrópusambandið hyggst framlengja sérlausn Íslands er varðar losunarheimildir vegna millilandaflugs til ársins 2030. Flugfélagið Icelandair hefur bókfært ríflega hundrað milljónir dala í losunar- og kolefniskostnað síðustu fjögur ár.
Greint er frá því í tilkynningu að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) og íslensk stjórnvöld hafi lýst sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausn Íslands vegna millilandaflugs, innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), um 3 ár eða til ársins 2030. Þetta kemur í kjölfar þess að framkvæmdastjórn ESB birti tillögur sínar um endurskoðun ETS-kerfisins sem nú ganga til aðildarríkjanna og Evrópuþingsins. Í frétt Politico um boðaðar breytingar er losunarheimildum lýst sem öflugasta tæki ESB til að takast á við loftslagsbreytingar, en það verði nú veikt til að leyfa fyrirtækjum að losa meira af gróðurhúsalofttegundum lengur. Í núgildandi ETS-löggjöf hefur flug til og frá EES-svæðinu verið undanskilið ETS-kerfinu. Bogi Nils Bogason sagði í stuttu samtali við Vísi að stjórnendur Icelandair skoðuðu nú tillögurnar en Icelandair hefur bókfært 110,2 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað frá ársbyrjun 2022 til loka mars á þessu ári. Kostnaðurinn hefur vaxið hratt á sama tíma og rekstur Icelandair hefur verið þungur. Á árunum 2022 til 2025 bókfærði félagið 102,8 milljónir dala, eða um 12,7 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað. Á sama tímabili tapaði Icelandair Group samtals 24,3 milljónum dala, eða um þremur milljörðum króna, eftir skatta. Loftslagsgjöldin voru því rúmlega fjórfalt hærri en samanlagt tap félagsins á þessum fjórum árum. Í tilkynningu kemur fram að þetta hafi skapað samkeppnisskekkju fyrir tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku um Keflavíkurflugvöll, samanborið við samkeppnisaðila á meginlandi Evrópu. Þetta hafi verið ein meginforsendan fyrir sérlausn Íslands. Samkvæmt tillögum framkvæmdastjórnarinnar yrði staðan óbreytt varðandi flug til Norður-Ameríku. Árið 2023 sömdu íslensk stjórnvöld um tímabundna sérlausn við upptöku reglnanna í EES-samninginn árið 2023 og segir í tilkynningunni að Ísland hafi á grundvelli sérlausnarinnar, sem átti að óbreyttu að falla úr gildi í lok árs, getað bætt upp þessa samkeppnisskekkju. Þá segir að framkvæmdastjórn ESB hafi einnig lýst yfir vilja til áframhaldandi stuðnings vegna notkunar sjálfbærs flugvélaeldsneytis (SAF). Ísland hafi sérlausn sem veitir flugrekendum rétt á 100% endurgreiðslu á verðmuninum á SAF og hefðbundnu flugvélaeldsneyti til 2030. Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir að ný tillaga framkvæmdastjórnar ESB geri ráð fyrir að unnt sé að fá endurgreiddan verðmun á SAF og venjulegu flugvélaeldsneyti einnig vegna flugs út af EES-svæðinu, svo sem til Bandaríkjanna. Formleg framlenging verður gerð með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvenær gengið verður frá henni. „Stjórnvöld munu nú greina nánar tillögur framkvæmdastjórnar ESB. Þær snerta einnig aðra geira, svo sem sjóflutninga og iðnað.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Loftslagsmál Icelandair Flug Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira