Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 07:00 Lionel Messi sparar hlaupin og hvílir sig þegar argentínska liðið verst. Í því felast tækifæri að mati Jamie Carragher. Getty/Carl Recine/ Enski knattspyrnuspekingurinn Jamie Carragher telur að enska landsliðið geti nýtt sér varnarveikleika Lionel Messi þegar liðið mætir Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld.
Carragher telur að England geti nýtt sér veikleika Lionel Messi í undanúrslitaleiknum. Þessi 38 ára leikmaður hefur verið einn af bestu leikmönnum heimsmeistaramótsins í sumar, skorað átta mörk og gefið tvær stoðsendingar í viðleitni sinni til að leiða Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins aðra keppnina í röð. Lið Thomas Tuchel mun reyna að finna leið til að stöðva Messi þegar það reynir að binda enda á sextíu ára bið eftir sæti í úrslitaleiknum á sunnudag. Carragher telur þó að ensku leikmennirnir ættu að skoða leiðir til að nýta sér varnarveikleika Messi jafn mikið og þeir reyna að loka á hann hinum megin á vellinum. „Þetta er ekkert nýtt með Messi. Hann hefur verið til staðar í tuttugu ár og enginn hefur fundið svarið,“ sagði Carragher við Sky Sports. „Það þarf að vera áætlun. Ég held að það verði ekki um mann-á-mann vörn að ræða, en þeir þurfa áætlun. Leikmennirnir munu búast við því. Það er alls ekki að játa sig sigraðan. Þú ert að mæta að öllum líkindum besta leikmanni allra tíma. Hann hefur sýnt það á þessu móti líka,“ sagði Carragher. „Þeir ættu líka að hugsa um hvernig þeir geta nýtt sér Lionel Messi. Hann gengur um þegar andstæðingurinn er með boltann, svo það þýðir ekki að vinstri bakvörður Englands eigi að standa við hliðina á honum allan leikinn. Þeir geta nýtt sér þá staðreynd að Argentína verjist aðeins með níu útileikmönnum,“ sagði Carragher eins og hlusta má á hér fyrir neðan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=YV8nIPgfYIs">watch on YouTube</a>
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira