Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 18:12 Fanney Inga Birkisdóttir heldur á Evrópubikarnum sem hún vann með Häcken í vor. Getty/Jess Hornby Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir er óvænt komin í nýtt félag eftir eitt og hálft ár hjá sænsku meisturunum í Häcken. Hún fer til annars Íslendingafélags í Noregi.
BK Häcken og norska félagið Vålerenga IF hafa nefnilega komist að samkomulagi um félagaskipti íslenska landsliðsmarkvarðarins. „Ég myndi lýsa tíma mínum hjá BK Häcken sem mjög lærdómsríkum. Ég hef tekið gríðarlega stór skref, bæði innan og utan vallar,“ sagði Fanney í viðtali á heimasíðu Häcken. Hún kom til sænska félagsins frá Val fyrir tímabilið 2025. Á einu og hálfu ári sínu hjá félaginu spilaði hún 34 leiki. View this post on Instagram A post shared by BK HÄCKEN (@bkhackenofcl) „Það hefur verið erfitt en samt skemmtilegt að flytja frá fjölskyldunni til nýs lands. Mér finnst ég hafa myndað sterk tengsl hér, næstum eins og nýja fjölskyldan mín. Við höfum byggt upp sterkt umhverfi og liðsanda. Umhverfi með miklum kröfum en líka frelsi fyrir leikmenn til að taka áhættu og vera hugrakkir. Það hefur verið stór ástæða fyrir bæði þroska mínum og velgengni liðsins á fótboltavellinum,“ sagði Fanney. Þessi 21 árs gamli markvörður hefur fengið mikið traust á tímabilinu og fest sig í sessi hjá sænska stórliðinu. Hún hjálpaði liðinu að vinna sænska meistaratitilinn í fyrra sem og Evróputitil í vor. „Uppáhaldsminningin mín hjá Häcken var þegar við unnum UEFA Women’s Europa Cup. Að lyfta þeim bikar fyrst allra liða og fá að gera það fyrir framan alla stuðningsmennina á heimavelli var alveg magnað,“ sagði Fanney.
Sænski boltinn Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira