„Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Agnar Már Másson skrifar 13. júlí 2026 20:32 Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistamanna. sýn Formaður Félags íslenskra hljómlistamanna segir íslenska tónlist eiga undir högg að sækja á streymisveitunni Spotify. Á sama tíma heyja tónlistarmenn stríð við ógrynni af gervigreindartónlist sem flæðir inn á streymisveituna.
Þegar íslenski topp fimmtíulistinn á streymisveitunni Spotify er skoðaður blasir við fremur dökk mynd af stöðu íslensku tónlistarsenunnar; af öllum fimmtíu eru aðeins tíu íslensk lög frá þessu ári. Restin er ýmist erlend tónlist eða eldri íslensk lög, sum hver hafa trónað á topplistanum svo árum skiptir. Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistamanna, telur ljóst að lyfta íslenskri tónlist hátt með einhverjum hætti. „Það er augljóst að það þarf að gera eitthvað ef tónlistin á að lifa, þegar þetta er helsta veitan fyrir tónlistina þarna í gegn, vegna þess að þetta þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist,“ segir Gunnar. Markaðshlutdeild Spotify á Íslandi er um 97 prósent, samkvæmt tilkynningu frá menningarmálaráðuneytinu sem birtist í apríl, en jafnframt er hlutfall íslenskrar tónlistar af heildarneyslu tónlistar hér á landi aðeins um 20 prósent. Gunnar segir að um um 87 prósent allra tekna af tónlist á síðasta ári fari til streymisveitna. En hverjar eru tekjur af því sem renna svo til tónlistarmannanna sjálfra? „Þeir fá sorglega lítið. Þetta er örmarkaður og það eru nokkur penní sem koma inn á hvert lag. En það getur talist upp í stórar upphæðir þegar markaðurinn er stór og gífurlegt streymi. En í íslensku samhengi getur þetta aldrei orðið neitt sérstaklega stórt.“ Í apríl fór Logi Einarsson, ráðherra menningarmála, í sérstaka ferð til höfuðstöðva Spotify í Svíþjóð ásamt föruneyti úr tónlistargeiranum. Markmið fundarins var að styrkja stöðu íslenskra tónlistarmanna á streymisveitunni en fram kom í máli Guðrúnar Bjarkar Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra STEF, í viðtali á Rás 2 í morgun að viðbrögðin frá Spotify hefðu verið lítil. Á sama tíma heyja tónlistarmenn baráttu gegn flóði gervigreindartónlistar, en gervigreindin er að miklu leyti þjálfuð á tónlist sem námuð var í leyfisleysi. Hann vonar að boðuð DSM-löggjöf sem sett verði hér á Íslandi á næsta ári tryggi réttindi höfunda gagnvart gervigreindarfyrirtækjum. „Það hefur orðið stórslys, stórfellt menningarslys, með því að gagnanámun hafi verið gerð, sem sagt öll verk mannanna hafi verið tekin og með þeim búin til gervigreind sem býr til eitthvað meðaltal á því. Augljóst væri að tala um skaðabætur til handa þeim sem tapa mestu.“
Streymisveitur Tónlist Menning Gervigreind Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Big Pussy er látinn Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Lífið Einstakar ljósmyndir sýna stemninguna á Kvennafrídeginum árið 1975 Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira