Sport

Stærsta stjarnan vill breyta hjólreiðadagatalinu vegna mikils hita

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tadej Pogacar hefur byrjað mjög vel í Frakklandshjólreiðunum en það hefur verið mjög heitt á mörgum dagleiðunum.
Tadej Pogacar hefur byrjað mjög vel í Frakklandshjólreiðunum en það hefur verið mjög heitt á mörgum dagleiðunum. Getty/Dario Belingheri/

Tadej Pogacar, sem er yfirburðamaður í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, er ekki hrifinn af því að hjóla í hitabylgjunni sem gengur yfir Frakkland þessa dagana. Slóveninn telur að ekki ætti að halda hjólreiðakeppnir á heitustu sumarmánuðunum.

Þetta sagði maðurinn í gulu forystutreyjunni eftir níunda áfanga á sunnudag. Það var áfangi sem var styttur um um það bil 30 kílómetra vegna mikils hita.

Frá því að keppnin í Frakklandi hófst í ár í Barcelona þann 4. júlí hafa keppendur daglega hjólað í hitastigi upp á allt að 35 gráður. Suma daga hefur hitinn náð 40 gráðum.

„Þetta er mikið umræðuefni, en ef það væri undir mér komið myndi ég breyta öllu keppnisdagatalinu. Ég myndi ekki halda keppnir í júlí og ágúst á stöðum þar sem er heitt, heldur búa til allt öðruvísi dagatal,“ sagði Pogacar og bætti við:

„Í gær var lögð fram tillaga um að við gætum byrjað klukkan 10:00, en fyrir mér breytir það engu, því þá lýkur maður samt í versta hitanum,“ sagði Pogacar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×