Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 22:58 Judi Dench, Ricky Gervais og Leona Lewis láta sig hvalina varða. Getty/samsett Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. Í bréfi til Hönnu Katrínar Friðriksson er það sagt sorglegt að hvalveiðar hafi byrjað að nýju í sumar og átján langreyðar nú þegar verið drepnar af Hvali hf. Þá er vísað til þess að ráðherrann hafi til skoðunar að leggja fram lagafrumvarp á næsta þingi sem banni veiðar. „Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta verða síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga,“ segir í bréfinu. Áður beitt sér fyrir hvali Undir bréfið skrifa einnig breski sjófarinn Tracy Edwards, ljósmyndarinn og leikstjórinn Rankin og Mary McCartney, kvikmyndagerðarkona, aðgerðarsinni og dóttir tónlistarmannsins Paul McCartney. Bréfið er sent til Hönnu Katrínar með milligöngu dýraverndunarsamtakanna Humane World for Animals. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gervais og Dench láta sig hvalveiðar varða en sá fyrrnefndi hefur til að mynda áður skorað á stjórnvöld í Japan og Færeyjum vegna veiða þeirra. Þá hafa þau bæði stutt verkefni til að vernda hvali og höfrunga. Breski miðillinn Daily Express hefur fjallað um bréf bresku stjarnanna til Hönnu Katrínar. Vísir hefur greint frá því að Matvælastofnun (MAST) rannsaki af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals í júní. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar, sem fer með eftirlit með hvalveiðum, varð atvikið þann 22. júní síðastliðinn. Dýrið var fyrst skotið klukkan sex mínútur yfir fimm, aftur tíu mínútum síðar og þá tvisvar sinnum og svo aftur ellefu mínútum síðar í fjórða sinn. Þrjátíu mínútur tók að aflífa dýrið. „Sem er náttúrulega lengri tími en kannski æskilegt er. Lög um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum gera kröfu um það að dýrið skal aflífað með þeim skemmsta hætti og valda sem minnstum sársauka,“ sagði Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri MAST, um málið. Bréfið í heild sinni (þýtt úr ensku) Kæri ráðherra Hanna Katrín Friðriksdóttir Við skrifum þér til að lýsa yfir djúpri sorg okkar vegna áframhaldandi hvalveiða í atvinnuskyni á Íslandi á þessu tímabili. Þegar þetta er skrifað erum við harmi slegin yfir fréttum frá Humane World for Animals um að 18 fallegar langreyðar hafi verið drepnar, þar á meðal ein þunguð kýr og ófæddur kálfur hennar, og að einn hvalur hafi verið skotinn fjórum sinnum með sprengiskutlum og tekið 31 kvalafulla mínútu að deyja. Við virðum niðurstöður Matvælastofnunar (MAST) frá 2023 sem komst að þeirri niðurstöðu að sumir hvalir sem drepnir voru í íslenskum veiðum hafi tekið allt að tvær klukkustundir að deyja og að 41% hvala hafi þjáðst gríðarlega áður en þeir drápust. Íslensk dýravelferðarlög og reglugerðir um hvalveiðar banna slíka grimmd. Langreyðar eru stórfenglegir risar hafsins sem Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) flokkar á heimsvísu í hættu á útrýmingu. Alþjóðlegt veiðibann er í gildi til að vernda stórhveli. Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga. Með virðingu Dame Judi Dench, Leona Lewis OBE, Tracy Edwards MBE, Ricky Gervais, Rankin og Mary McCartney. Fréttin hefur verið uppfærð. Hvalveiðar Hvalir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Fleiri fréttir Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Sjá meira
Í bréfi til Hönnu Katrínar Friðriksson er það sagt sorglegt að hvalveiðar hafi byrjað að nýju í sumar og átján langreyðar nú þegar verið drepnar af Hvali hf. Þá er vísað til þess að ráðherrann hafi til skoðunar að leggja fram lagafrumvarp á næsta þingi sem banni veiðar. „Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta verða síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga,“ segir í bréfinu. Áður beitt sér fyrir hvali Undir bréfið skrifa einnig breski sjófarinn Tracy Edwards, ljósmyndarinn og leikstjórinn Rankin og Mary McCartney, kvikmyndagerðarkona, aðgerðarsinni og dóttir tónlistarmannsins Paul McCartney. Bréfið er sent til Hönnu Katrínar með milligöngu dýraverndunarsamtakanna Humane World for Animals. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gervais og Dench láta sig hvalveiðar varða en sá fyrrnefndi hefur til að mynda áður skorað á stjórnvöld í Japan og Færeyjum vegna veiða þeirra. Þá hafa þau bæði stutt verkefni til að vernda hvali og höfrunga. Breski miðillinn Daily Express hefur fjallað um bréf bresku stjarnanna til Hönnu Katrínar. Vísir hefur greint frá því að Matvælastofnun (MAST) rannsaki af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals í júní. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar, sem fer með eftirlit með hvalveiðum, varð atvikið þann 22. júní síðastliðinn. Dýrið var fyrst skotið klukkan sex mínútur yfir fimm, aftur tíu mínútum síðar og þá tvisvar sinnum og svo aftur ellefu mínútum síðar í fjórða sinn. Þrjátíu mínútur tók að aflífa dýrið. „Sem er náttúrulega lengri tími en kannski æskilegt er. Lög um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum gera kröfu um það að dýrið skal aflífað með þeim skemmsta hætti og valda sem minnstum sársauka,“ sagði Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri MAST, um málið. Bréfið í heild sinni (þýtt úr ensku) Kæri ráðherra Hanna Katrín Friðriksdóttir Við skrifum þér til að lýsa yfir djúpri sorg okkar vegna áframhaldandi hvalveiða í atvinnuskyni á Íslandi á þessu tímabili. Þegar þetta er skrifað erum við harmi slegin yfir fréttum frá Humane World for Animals um að 18 fallegar langreyðar hafi verið drepnar, þar á meðal ein þunguð kýr og ófæddur kálfur hennar, og að einn hvalur hafi verið skotinn fjórum sinnum með sprengiskutlum og tekið 31 kvalafulla mínútu að deyja. Við virðum niðurstöður Matvælastofnunar (MAST) frá 2023 sem komst að þeirri niðurstöðu að sumir hvalir sem drepnir voru í íslenskum veiðum hafi tekið allt að tvær klukkustundir að deyja og að 41% hvala hafi þjáðst gríðarlega áður en þeir drápust. Íslensk dýravelferðarlög og reglugerðir um hvalveiðar banna slíka grimmd. Langreyðar eru stórfenglegir risar hafsins sem Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) flokkar á heimsvísu í hættu á útrýmingu. Alþjóðlegt veiðibann er í gildi til að vernda stórhveli. Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga. Með virðingu Dame Judi Dench, Leona Lewis OBE, Tracy Edwards MBE, Ricky Gervais, Rankin og Mary McCartney. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kæri ráðherra Hanna Katrín Friðriksdóttir Við skrifum þér til að lýsa yfir djúpri sorg okkar vegna áframhaldandi hvalveiða í atvinnuskyni á Íslandi á þessu tímabili. Þegar þetta er skrifað erum við harmi slegin yfir fréttum frá Humane World for Animals um að 18 fallegar langreyðar hafi verið drepnar, þar á meðal ein þunguð kýr og ófæddur kálfur hennar, og að einn hvalur hafi verið skotinn fjórum sinnum með sprengiskutlum og tekið 31 kvalafulla mínútu að deyja. Við virðum niðurstöður Matvælastofnunar (MAST) frá 2023 sem komst að þeirri niðurstöðu að sumir hvalir sem drepnir voru í íslenskum veiðum hafi tekið allt að tvær klukkustundir að deyja og að 41% hvala hafi þjáðst gríðarlega áður en þeir drápust. Íslensk dýravelferðarlög og reglugerðir um hvalveiðar banna slíka grimmd. Langreyðar eru stórfenglegir risar hafsins sem Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) flokkar á heimsvísu í hættu á útrýmingu. Alþjóðlegt veiðibann er í gildi til að vernda stórhveli. Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga. Með virðingu Dame Judi Dench, Leona Lewis OBE, Tracy Edwards MBE, Ricky Gervais, Rankin og Mary McCartney.
Hvalveiðar Hvalir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Fleiri fréttir Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Sjá meira