Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 22:14 Mikil hætta var á ferðum. Ap/Sakchai Lalit Minnst 27 manns létust þegar eldur kviknaði á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands. Forsætisráðherra landsins greinir frá þessu en slökkvilið var kallað á vettvang rétt eftir miðnætti á mánudag að staðartíma. Sáust þá gestir staðarins flýja út um alelda útidyr.
Anutin Charnvirakul forsætisráðherra tjáði fréttafólki á vettvangi að 27 lík hefðu fundist og aðrir verið fluttir á sjúkrahús. Eldsupptök séu enn í rannsókn. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu en myndskeið sem birt var á X, áður Twitter, sýnir eldtungur teygja sig út úr staðnum á meðan fólk forðar sér út. Sumir öskra og aðrir detta á meðan eldur virðist hafa kviknað í minnst tveimur. Slökkviliðsmenn náðu tökum á eldinum á um hálftíma. Í fréttum staðarmiðla segir að níu karlar og átján konur séu meðal þeirra 27 sem létust. Yfir 60 manns hlutu aðhlynningu á sjúkrahúsi. Nokkurra er enn saknað, að sögn staðarmiðils. Vinsæll veitinga- og skemmtistaður Forsætisráðherrann sagði fréttamönnum að hann hefði spurt tónlistarmann sem var að spila þegar eldurinn kviknaði hvað hefði gerst. „Hann sagði að það hefði kviknað eldur í straumrofanum og eftir það hefðu hlutirnir gerst mjög hratt. Það urðu sprengingar og allir reyndu að flýja reykinn og eldinn.“ „Mörgum þeirra tókst ekki að komast út vegna þess að þeir fóru aftast í bygginguna og reyndu að forðast reykinn og eldinn á salerninu og þar fundum við flest líkin.“ Barinn heitir Rong Beer Na Lat Phrao og er staðsettur í Chatuchak-hverfinu í Bangkok. Um er að ræða vinsælan veitingastað og skemmtistað á svæðinu, að sögn taílenska miðilsins Daily News. Átakanlegar myndir sem teknar voru eftir að búið var að ná tökum á eldinum sýna röð af líkpokum fyrir utan barinn og stórt afgirt svæði. Fréttin hefur verið uppfærð.
Taíland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira