„Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Sindri Sverrisson skrifar 9. júlí 2026 12:01 Vestramenn hafa aldrei spilað á stærri leikvangi en í dag. Hér er hluti af hópnum í Bakú, það er að segja þeir leikmenn sem Jón Hálfdán Pétursson, stjórnarmaður, hefur þjálfað en hann er með á myndinni. @Vestri.Knattspyrna „Þetta er stærsti leikur sem allir sem að Vestra koma hafa tekið þátt í. Við viljum gera eins vel og við getum og verða Íslandi til sóma en vitum að þetta verður mjög erfitt,“ segir Samúel Samúelsson, stjórnarmaður hjá Vestra, fyrir fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins.
Bikarmeistarar Vestra eru mættir í gin ljónsins, ef svo má segja, eftir fjórtán tíma ferðalag á þriðjudaginn til Baku í Aserbaísjan. Þar mæta þeir liði Qarabag á 28.000 manna þjóðarleikvangi Asera, klukkan 16 í dag að íslenskum tíma. Samúel segir heimamenn vægast sagt bjartsýna fyrir leikinn í dag, enda spilaði Qarabag í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og gerði til að mynda 2-2 jafntefli við Chelsea auk þess að vinna FC Kaupmannahöfn, Benfica og Frankfurt. „Þetta er töluvert stærra“ „Miðað við hvernig fólkið hérna talar þá yrði nánast ekki annað boðlegt fyrir Qarabag en að vinna með tveggja stafa tölu. Þeir horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi, ekki kannski alveg þannig að við kunnum ekki að sparka í bolta en þeir hafa ekki mikla trú á okkur,“ segir Samúel. Hvaða möguleika á þá Lengjudeildarlið Vestra, með enga reynslu af því að spila Evrópuleiki? „Ég held að íslensk lið hafi ekki fengið mikið erfiðari andstæðing. Þetta er nýtt fyrir alla leikmenn og alla sem koma að Vestra. Það stærsta sem við höfum gert hingað til er að labba inn á Laugardalsvöll en þetta er töluvert stærra en það. En við áttum okkur líka á að við unnum fyrir þessu og þess vegna erum við hérna,“ segir Samúel. Vestramenn komust í undankeppni Evrópudeildarinnar með því að verða bikarmeistarar í fyrsta sinn í fyrra.vísir / ernir Leikurinn í dag er fyrri leikur liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar. Seinni leikurinn verður svo á Þróttarvelli eftir viku, þar sem UEFA leyfði ekki að spilað yrði á Ísafirði. „Fengum besta liðið og óþægilegasta ferðalagið“ Qarabag komst í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar tímabilið 2023-24 og stóð sig frábærlega í Meistaradeildinni í vetur, þar sem liðið komst áfram í umspil um sæti í 16-liða úrslitum en steinlá þó þar gegn Newcastle, samtals 9-3. Engum dylst hve stórskostlega erfið rimma bíður Vestramanna: „Við hefðum ekki getað verið óheppnari með drátt. Við fengum besta liðið gegn okkur og líka óþægilegasta ferðalagið. Það hefði strax verið betra að fá Dynamo Kiev og fara til Póllands. Ef við erum mjög raunsæir þá gerir enginn ráð fyrir því að Vestri eigi séns. Ég heyrði að stuðullinn hefði verið 78 á að Vestri myndi vinna. Við gerum okkur grein fyrir að Qarabag er frábært lið en við verðum að vera bjartsýnir og standa okkur eins vel og við getum,“ segir Samúel.
Vestri Evrópudeild UEFA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira