Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 19:00 Aron Snær missir af næstu tveimur til þremur vikum sökum meiðsla. Óttast var að meiðslin væru alvarlegri. Vísir/Anton Brink Aron Snær Friðriksson, markvörður Víkings, verður frá í tvær til þrjár vikur að sögn Sölva Geirs Ottesen, þjálfara liðsins. Hann meiddist í sigri Víkings á KA á dögunum.
Sölvi Geir greinir frá í samtali við Fótbolti.net í dag. Víkingar undirbúa sig fyrir leik við Ungverjalandsmeistara Györ í Víkinni annað kvöld. Ögmundur Kristinsson mun þar standa milli stanganna hjá Íslandsmeisturunum en sá kom til liðsins frá Val utan félagsskiptaglugga. Víkingur fékk sér heimild frá KSÍ til skiptanna sökum veikinda Ingvars Jónssonar, sem hóf markið sem aðalmarkvörður, en hefur verið í leyfi sökum baráttu við krabbamein. Aron Snær tók við keflinu af Ingvari og hefur staðið sig einkar vel í marki meistaranna, sem hafa fengið á sig lang fæst mörk allra liða í Bestu deildinni það sem af er sumri. Einhverjir tóku andköf þegar Aron virtist meiðast illa í leik Víkings við KA síðustu helgi en hann verður ekki lengi frá. „Þetta fór betur en á horfðist. Við vorum hræddir um að þetta væru alvarlegri meiðsli. Það lítur út fyrir að hann verði frá í tvær, þrjár vikur,“ segir Sölvi Geir við Fótbolti.net. Daníel Hafsteinsson muni þá spila leikinn eftir að hafa misst af leiknum við uppeldisfélag sitt síðustu helgi. Þeir Daði Berg Jónsson, Stígur Diljan Þórðarson og Róbert Orri Þorkelsson séu þá allir á batavegi og komist aftur á völlinn innan tíðar. Víkingur mætir Györ klukkan 19:00 annað kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og bein útsending hefst klukkan 18:50.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Fleiri fréttir „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Sjá meira