Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. júlí 2026 12:55 Almyrkvinn 12. ágúst á þessu ári. Hann mun sjást á vestasta hluta Íslands en mislengi eftir stöðum. Deildarmyrkvi mun sjást á öllu landinu. Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Fjölmennir ferðamannahópar hafa að undanförnu afbókað gistingu fyrir vestan sem ætluðu að dvelja þar til að upplifa almyrkva á sólu um miðjan ágúst. Starfsmann Vestfjarðastofu grunar að ferðaskrifstofur hafi frátekið gistingu í fleiri en einu landi sem tilheyrir almyrkvaslóðum og séu nú að taka ákvörðun; af eða á.
Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn í ríflega sjötíu ár. Hann verður sýnilegur frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga en varað hefur verið við metfjölda ferðamanna fyrir vestan. Birna Mjöll Atladóttir, eigandi Hótel Breiðavíkur, hefur undanfarna daga orðið vör við skyndilegar afbókanir fjölmennra hópa en þrír slíkir afbókuðu á dögunum. „Þeir voru búnir að hafa bókað hjá mér nokkuð lengi, allavega í ár eða á annað ár. Svo þegar ég ákvað að nú þyrfti ég að fá greitt staðfestingargjald þá afbókuðu tveir hópanna strax en þriðji hópurinn borgaði staðfestingargjaldið en afbókaði síðan bara seinna.“ Hvað heldurðu að hafi leitt til þessa? „Veistu það? Ég veit það ekki. Mér finnst skrýtið ef þetta er vegna staðfestingargjaldsins vegna þess að við borgum staðfestingargjald þegar við erum sjálf að ferðast.“ Samanlagt hafa minnst sjötíu og fimm manns afbókað á Hótel Breiðavík á síðustu vikum en Birna segir að brjálað verði að gera á tjaldsvæðinu sem hún rekur aukinheldur. Sölvi Guðmundsson teymisstjóri hjá Vestfjarðarstofu var spurður hvað hann teldi að væri í gangi. „Það hefur verið talað um að margar af ferðaskrifstofunum sem skipuleggja þetta fram í tímann hafi bókað sér gistingu bæði hér og á Spáni, þar sem er líka almyrkvi á sólu, til að tryggja sér gistinguna, og þetta er gert með tveggja til þriggja ára fyrirvara og núna þegar nær dregur getur verið að þau séu bara búin að taka ákvörðun um að upplifa myrkvann á Spáni en ekki á Íslandi.“ En er áhuginn og aðsóknin ekki það mikil? Verður ekki nokkuð auðvelt að fylla í skarðið? „Það ætti ekki að vera erfitt. Enn þá er eitthvað fólk að leita að gistingu, það ætti ekki að vera erfitt að fylla upp í skarðið,“ sagði Sölvi Guðmundsson, teymisstjóri hjá Vestfjarðarstofu.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Vesturbyggð Tengdar fréttir Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi miðar almennt vel og er hann á mörgum stöðum á lokametrunum. 27. júní 2026 19:55 Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Um tveir mánuðir eru í að almyrkvi sjáist á hluta landsins. Vísindamiðlari segir þetta sögulegan viðburð sem beri að halda upp á og enginn eigi eftir að upplifa aftur. Að mörgu þurfi að huga og ekki sé sama hvenær fólk fari á salernið á þessum einstaka degi. 13. júní 2026 22:39 Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Innviðaráðuneytið hefur ákveðið, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. 5. júní 2026 21:48 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira
Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Undirbúningi í tengslum við almyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi miðar almennt vel og er hann á mörgum stöðum á lokametrunum. 27. júní 2026 19:55
Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Um tveir mánuðir eru í að almyrkvi sjáist á hluta landsins. Vísindamiðlari segir þetta sögulegan viðburð sem beri að halda upp á og enginn eigi eftir að upplifa aftur. Að mörgu þurfi að huga og ekki sé sama hvenær fólk fari á salernið á þessum einstaka degi. 13. júní 2026 22:39
Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Innviðaráðuneytið hefur ákveðið, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. 5. júní 2026 21:48