Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Jón Þór Stefánsson skrifar 3. júlí 2026 19:42 Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, ræddi um málið í kvöldfréttum Sýnar. Vísir/Ívar Fannar Matvælastofnun breytti verklagi sínu varðandi upplýsingaöflun með hvalveiðum í morgun ábendingar frá Hvali hf. Að mati fyrirtækisins eru upplýsingar um staðsetningu veiða í eftirlitskýrslum stofnunarinnar sem geti ógnað öryggi sjómanna komist þær í hendur þriðja aðila, líkt og til áhafnar Bandero, skips sem bíður nú við Íslandsstrendur og hefur það að markmiði að stöðva hvalveiðar.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, ræddi um málið í kvöldfréttum Sýnar. Er það rétt sem Kristján Loftsson segir að þið hjá MAST hafið deilt upplýsingum um staðsetningu skipana? „Eins og með allar eftirlitsstofnanir landsins er okkur skylt að veita upplýsingar á grundvelli upplýsingalaga. Þær eru veittar svo framarlega sem þær brjóta ekki á persónuverndarlögum. Við erum skyldug til að veita allar þær upplýsingar sem við höfum og eftirlitsskýrslur sem við söfnum, þannig við höfum enga aðra úrkosti heldur en að afhenda þessi gögn. En það er svo spurning hvernig þau eru nýtt, og hvort þau séu þá nýtt í annarlegum tilgangi eða ólöglegum tilgangi,“ sagði hún. Eftir að stofnunni barst ábending frá Hvali hafi þau farið yfir núverandi reglur og breytt eftirliti sínu. „Það þarf að rýna það í hvert skipti hvort þetta séu viðkvæmar upplýsingar, en þetta var verklag sem við höfum haft í töluvert mörg ár. Um leið og við fengum ábendingu um þetta, núna í morgun, þá fórum við yfir reglugerðina og fórum yfir það hvaða upplýsingar okkur er skylt að afla, og breyttum verklagi. Þannig að í dag erum við búin að taka þetta út, og erum ekki að safna þessum upplýsingum af því að það þjónar ekki eftirliti Matvælastofnunar. Í raun og veru væri þá ekki lengur hægt að rekja þessi gögn til okkar.“ Gæti MAST verið bótaskylt? „Mér finnst það ólíklegt. En auðvitað ef Kristján telur á sér brotið á hann að leita réttar síns,“ sagði Hrönn. Henni þykir þó leiðinlegt að starfsmönnum Hvals sé stefnt í hættu, en telur að ábyrgð þeirra sem hafi aflað umræddra upplýsinga mikil. „Það er náttúrulega bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu með viðveru þessa skips hérna. Við afhendum gögn á grundvelli laga sem gilda í landinu. Svo að mínu mati er ábyrgð þeirra sem afla þessara gagna og afhenda þau áfram gríðarlega mikil í þessu máli.
Hvalveiðar Hvalir Matvælastofnun Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira