Þýska sambandið vill ræða við Klopp eftir afsögn Nagelsmann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 14:01 Jürgen Klopp verður væntanlega næsti landsliðsþjálfari Þjóðverja. Getty/Richard Sellers Þýska knattspyrnusambandið vill ræða við Jürgen Klopp um að taka við sem þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta eftir að Julian Nagelsmann sagði af sér.
Nagelsmann óskaði eftir því á fimmtudag að verða leystur undan skyldum sínum eftir að liðið féll snemma úr leik á heimsmeistaramótinu. Þýska sambandið hefur staðfest þetta á miðlum sínum. Í yfirlýsingu sagði DFB að það „muni nú leita eftir viðræðum við Jurgen Klopp“ og bætti við: „Hann hefur þegar gefið til kynna almennan vilja sinn til að taka við stöðunni.“ Þýskaland féll úr leik á heimsmeistaramótinu á mánudag eftir að fjórfaldir meistararnir töpuðu fyrir Paragvæ í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum. Upphaflega var Nagelsmann, sem var ráðinn árið 2023, staðráðinn í að halda áfram og sagði eftir leikinn: „Ég er ekki maður sem hleypst á brott.“ En í yfirlýsingu á föstudag sagði hann: „Ég hef hugsað mikið síðustu daga frá því við féllum úr leik og hef ráðfært mig við trausta einstaklinga, bæði persónulega og innan sambandsins. Ákvörðunin var allt annað en auðveld fyrir mig. Forgangsatriði mitt hefur alltaf verið velgengni liðsins. Eftir svona bitur vonbrigði á liðið skilið tækifæri til að byrja upp á nýtt,“ er haft eftir Nagelsmann. Þetta var annað stórmót Nagelsmanns, en Þýskaland komst í fjórðungsúrslit EM 2024 sem gestgjafar áður en liðið tapaði í framlengingu fyrir Spáni, sem síðar varð meistari. Þýskaland hefur ekki unnið leik í útsláttarkeppni HM síðan liðið varð meistari árið 2014. Liðið komst ekki upp úr riðlakeppninni árin 2018 og 2022, undir stjórn Joachim Löw og Hansi Flick. View this post on Instagram A post shared by German Football (@germanfootball_dfb) Nagelsmann, sem hefur einnig stýrt þýsku félagsliðunum RB Leipzig og Hoffenheim, tók við af Flick í september 2023, upphaflega með samning til loka EM 2024. Samningurinn var síðar framlengdur til heimsmeistaramótsins í ár og svo til EM 2028. „Eftir vonbrigðin á heimsmeistaramótinu fyrir alla á ákvörðun Julians skilið virðingu okkar, því hann tekur ábyrgð þar sem hann hefði viljað halda áfram að móta hlutina og setur landsliðið í heild sinni ofar sjálfum sér,“ bætti Rudi Völler, yfirmaður íþróttamála hjá DFB, við. „Auðvitað hefðum við öll viljað sjá aðra niðurstöðu á mótinu og sannfærandi frammistöðu frá liðinu okkar. En Julian er og verður frábær þjálfari og ég er sannfærður um að hann muni halda áfram á sinni farsælu braut.“
HM 2026 í fótbolta Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira